Bólginn rekstur Orkuveitu Reykjavíkur skorinn niður 3. ágúst 2010 06:45 Laun og launatengd gjöld námu um fjórðungi af veltufé í rekstri Orkuveitu Reykjavíkur í fyrra. Stjórnendur félagsins huga nú að því hvernig skera megi niður í rekstri samhliða gjaldskrárhækkunum. Fréttablaðið/gva
Úttekt á starfsemi Orkuveitu Reykjavíkur sem nú er í gangi á að ljúka um miðjan ágúst. Skorið verður niður í rekstri félagsins áður en tilkynnt verður um þær gjaldskrárhækkanir sem væntanlega þarf að fara í, segir Haraldur Flosi Tryggvason, stjórnarformaður OR. „Vissulega sér maður að reksturinn er dálítið bólginn, þess vegna erum við að leggja í þessa vegferð, að skera niður í rekstrinum. Hvort það verður í formi launabreytinga eða fækkunar starfsmanna er of snemmt að segja til um,“ segir Haraldur. Fram kemur í ársreikningi Orkuveitunnar fyrir síðasta ár að um 651 ársverk var unnið hjá fyrirtækinu. Starfsmenn þess eru í dag á áttunda hundraðið, að sumarstarfsfólki meðtöldu. Launakostnaður OR í fyrra nam tæplega 3,7 milljörðum króna, auk ríflega 800 milljóna króna í launatengd gjöld. Meðallaun starfsmanna fyrirtækisins voru rétt tæpar 470 þúsund krónur á mánuði. Kostnaður fyrirtækisins af hverjum starfsmanni var að meðaltali 576 þúsund krónur. Samkvæmt heimildum Fréttablaðsins verður farið í umfangsmiklar niðurskurðaraðgerðir innan OR fyrir haustið. Meðallaun starfsmanna hjá Orkuveitunni hafa hækkað umtalsvert á síðustu árum. Árið 2006 voru meðallaunin um 404 þúsund á mánuði. Þau fóru í 427 þúsund árið 2007 og 485 þúsund árið 2008. Meðallaunin lækkuðu svo örlítið milli ára, og voru komin í tæplega 470 þúsund í fyrra. Hækkunin á þriggja ára tímabili er því um 16,3 prósent. Samkvæmt úttekt Fréttablaðsins eru starfsmenn OR í dag 726 í hinum ýmsu deildum félagsins. Alls starfa sautján fastráðnir starfsmenn að almannatengslum, við móttöku gesta eða á minjasafni, auk fjögurra sumarstarfsmanna. Þetta eru talsvert fleiri en starfa hjá stærsta almannatengslafyrirtæki landsins. Þá starfa sautján fastráðnir starfsmenn við mötuneyti OR, auk fjórtán sumarmanna. Alls starfa á sjöunda tug við innheimtu og álestur. Á bóka- og skjalasafni fyrirtækisins starfa fjórir í fullu starfi og einn sumarliði. Erfið staða Orkuveitunnar er aðallega til komin vegna lána sem félagið tók í erlendri mynt fyrir bankahrunið, og hafa þær skuldir þanist út með falli krónunnar. Haraldur segir augljóst að tiltekt í rekstrinum bjargi ekki ein og sér fyrirtækinu frá þeim vanda sem að því steðji. Miklu skipti engu að síður að reyna að vinna á skuldabagganum þó hann virðist á tímum ókleifur. Það verði ekki gert öðruvísi en með því að lækka útgjöld og hækka tekjur. brjann@frettabladid.is
Mest lesið Maður stunginn í miðbæ Reykjavíkur Innlent Féll í Jökulsárlón Innlent Flugfólkið þurfti stöðugt að varast trúarlögregluna Innlent „Við þurfum að horfast í augu við þessa fortíð“ Innlent Leita enn að geranda í stungumáli Innlent Nafn piltsins sem lést í slysi á Miklubraut Innlent Uppfylltu öll skilyrði nema aldurstakmarkið Innlent Dæmi um leikskóla þar sem enginn starfsmaður talar íslensku Innlent „Þetta er náttúrulega bara rotið og galið“ Innlent Nemendur vilji ekki vera í skólanum á meðan rektor er við stjórnvölinn Innlent Fleiri fréttir Ríkið hvetur til nýliðunar en útilokar fólk eftir fertugt Lyfjafræðingar afar ósáttir við fyrirhugaða lagabreytingu og boða aðgerðir ef ekki rætist úr Féll í Jökulsárlón Dæmi um leikskóla þar sem enginn starfsmaður talar íslensku Vill lægri skatta á matvöruverð og leitað að stungumanni Leita enn að geranda í stungumáli Epstein-skjölin, verðbólgan og bréf leikskólastjóra Flugfólkið þurfti stöðugt að varast trúarlögregluna Maður stunginn í miðbæ Reykjavíkur „Við þurfum að horfast í augu við þessa fortíð“ Orri oddviti Sjálfstæðismanna í Hafnarfirði Birgir Örn óviss en Ísak Leon handviss Þór leiðir aftur á Seltjarnarnesi María Ellen kjörin oddviti Viðreisnar í Kópavogi Orri áfram oddviti Framsóknar í Kópavogi Jónas Már kjörinn oddviti Samfylkingarinnar í Kópavogi Þorvaldur og Halldór með Einari og Magneu í Framsókn Einn handtekinn fyrir þjófnað í Skeifunni „Þetta er náttúrulega bara rotið og galið“ Nafn piltsins sem lést í slysi á Miklubraut Hjólar í borgina: Hafi engan áhuga á atkvæðum hjólreiðafólks Sigmundur í skotlínunni vegna ummæla um Svíþjóð Berglind rétt marði Þórhall „Síminn stoppar ekki“ Bifrastarmálið: „Þetta er fyrst og fremst sorglegt“ Mótorhjól eru bönnuð í Grænlandi Vantrauststillagan stendur þrátt fyrir niðurstöðu siðanefndar Hlédís Maren fram fyrir Miðflokkinn Nemendur vilji ekki vera í skólanum á meðan rektor er við stjórnvölinn Spyr hvort troða eigi gömlu fólki inn á heimili landsmanna Sjá meira