Lífið

Handboltalandsliðið og eiginkonurnar

Sigrún Ósk Kristjánsdóttir annar þáttastjórnandi Ísland í dag var viðstödd þegar íslenska handboltalandsliðið okkar tryggði sér sín fyrstu bronsverðlaun frá upphafi á stórmóti.

„Við eltum tæplega 200 Íslendinga út á leikinn þar sem við hittum strákana og konurnar þeirra," segir Sigrún Ósk spurð út í ferðalagið til Austurríkis.

„Það var magnað að fá að vera þarna á staðnum og fylgjast með þessu. Ég vona að við náum að skila smá broti af stemningunni heim í stofu í kvöld," segir Sigrún Ósk.

Ekki missa af þættinum Ísland í dag klukkan 18:55 strax að loknum fréttum Stöðvar 2.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.