Kokkarnir fengu fyrstir veður af stýrivaxtalækkuninni 28. janúar 2010 06:00 Þá og nú Már Guðmundsson fékk hárskera sinn til fimmtán ára, Vagn Boysen, til að raka skeggið af þeim Tómasi Tómassyni og Úlfari Eysteinssyni. Þeir félagar hafa safnað skeggi síðan síðasta sumar og er breytingin gríðarlega mikil eins og myndirnar sýna.
Matreiðslumennirnir Úlfar Eysteinsson og Tómas Tómasson fengu fyrstir allra veður af hugsanlegri stýrivaxtalækkun. Seðlabankastjóri hringdi í þá á mánudagskvöldið og greindi þeim frá því að þeir yrðu að vera í startholunum. Hárskeri seðlabankastjórans sá síðan um raksturinn. Tómas Tómasson, oftast kenndur við Búlluna, og Úlfar Eysteinsson á Þremur frökkum, hafa síðan síðasta sumar safnað skeggi til að mótmæla háum stýrivöxtum. Þeir hugðust ekki raka sig fyrr en vextirnir færu niður fyrir tíu prósent. Fréttablaðið hefur síðan þá fylgst grannt með gangi mála hjá þeim og í gær varð loks ljóst að draumur þeirra væri orðinn að veruleika. „Ég ræddi við þá í gærkvöldi [mánudagskvöld] og sagði þeim frá því að þetta gæti hugsanlega verið yfirvofandi. Þeir komu síðan hingað klukkan tíu og við áttum notalega stund saman,“ segir Már Guðmundsson seðlabankastjóri. Fréttablaðið náði tali af honum eftir blaðamannafund þar sem tilkynnt var að stýrivextir hefðu verið lækkaðir niður í 9,5 prósent. Már fékk hárskerann sinn, Vagn Boysen, til að leysa þetta verkefni af hólmi og greiddi sjálfur fyrir. „Þetta gekk bara vel, ég var bara með góða vél og þetta var ekkert sársaukafullt, þetta hefur tekið svona klukkutíma,“ segir Vagn í samtali við Fréttablaðið en hann hefur klippt seðlabankastjórann undanfarin fimmtán ár. Vagn segir seðlabankastjóra vera ákaflega góðan kúnna og það fari eftir því hversu langur tími líði á milli hvernig klippingu hann vilji fá. Már viðurkennir að þeir í Seðlabankanum hafi fylgst með hinum friðsamlegu mótmælum í fjarlægð og haft nokkuð gaman af. „Ekki það að þau hafi haft nein áhrif á ákvarðanir okkar. Hins vegar var því haldið fram af gárungunum að ástæðan fyrir því að stýrivextirnir voru ekki lækkaðir niður fyrir tíu um jólin væri sú að við vildum ekki eyðileggja fyrir þeim jólavertíðina,“ segir Már en eins og Fréttablaðið greindi frá klæddu þeir Úlfar og Tómas sig upp sem jólasveinar og fóru í nokkra af leikskólum borgarinnar og gáfu börnunum bæði kerti og spil. Már bætir því síðan við að þrjóska kokkanna hafi ekki komið þeim á óvart. „Nei, síður en svo. Þeir gáfu út þessa yfirlýsingu og miðað við það sem maður þekkir til þessara manna þá var engin ástæða til að ætla neitt annað en að þeir myndu standa við hana. Og það væri nú gaman ef fleiri í þjóðfélaginu fetuðu í þeirra spor,“ segir Már. Tvennum sögum fer af því hvað verði síðan um skeggið. Samkvæmt áreiðanlegum heimildum Fréttablaðsins mun Seðlabankinn fá annað skeggið, hannaður verður sérstakur platti og krukka með skegginu í og því verði síðan komið fyrir á áberandi stað innan veggja Seðlabankans. freyrgigja@frettabladid.is Úlfar Eysteinsson / Tómas Tómasson Tommi veitingamenn /Rakstur/Lækkun vaxta/ Blaðamannafundur Seðlabankastjóra asdf asdf
Mest lesið Patrik kaupir glæsihús frænku sinnar Lífið Berbrjósta og bleikhærðar með byltingu Lífið Töluðu íslensku við mannhafið Lífið Fullkominn brúðkaupsdagur í sænskum kastala Lífið Fárveik í París Lífið Skiptir stærðin raunverulega máli? Lífið Frumsýning á Vísi: Stikla fyrir aðra seríu af Bannað að hlæja Lífið Ástin sem eftir er framlag Íslands til Óskarsverðlauna Bíó og sjónvarp Stígur út fyrir ramma raunveruleikans Tíska og hönnun Einbýlishús með möguleika á makaskiptum Lífið Fleiri fréttir Segir lýtaaðgerðir hennar leið til að eldast með reisn Patrik kaupir glæsihús frænku sinnar Opnar sig eftir handtökuna Töluðu íslensku við mannhafið Hin 93 ára Jóhanna skríður enn um garðinn til að halda honum fínum Fárveik í París Fullkominn brúðkaupsdagur í sænskum kastala Skiptir stærðin raunverulega máli? Berbrjósta og bleikhærðar með byltingu Taylor Swift trúlofuð Taumlaus gleði og stjörnum prýddir tónleikar Stórstjörnur í mögulegum ástarþríhyrningi Leikur Elsu Lund í fatla eftir vondan skell Segir Gleðigönguna ekki vera fyrir sig en styður baráttuna Einbýlishús með möguleika á makaskiptum Sagan þegar Villi Vill ákvað að lagið Söknuður yrði í eigin jarðarför Frumsýning á Vísi: Stikla fyrir aðra seríu af Bannað að hlæja Dansinn dunaði á Menningarnótt Will Smith sakaður um að falsa áhorfendur með gervigreind Lil Nas X laus gegn tryggingu „Blessaður, þú ert með heilaæxli“ Woody Allen segist enginn aðdáandi Pútíns Ein glæsilegasta leikkona landsins selur slotið Lil Nas X ákærður fyrir brot á alríkislögum Ljúffengir hafraklattar með kaffinu Þetta eru keppendur Ungfrú Ísland Teen 2025 Hegðun Benedikts kom upp um bónorðið „Hjálpar okkur í að nýta þjónustu sem er ekki til á Íslandi í dag en ætti að vera til“ Fagurkeri selur miðbæjarperlu „Ég trúði því aldrei að ég yrði þessi gaur“ Sjá meira