Innlent

Götum í miðborginni lokað vegna kvikmyndatöku

MYND/GVA

Umferð um Fríkirkjuveg og Skothúsveg verður stöðvuð á milli klukkan 13 og 15 í dag vegna kvikmyndatöku. Í tilkynningu hvetur Umferðarstofa ökumenn til að fara ekki inn í íbúðarhverfi miðborgarinnar, til að komast framhjá lokuninni, heldur finna sér frekar leið um stofnbrautir.

„Má í því sambandi nefna að hægt er að komast sunnan af eftir Sæbraut og Kalkofnsvegi inn að Lækjargötu og norðan frá er hægt að fara Geirsgötuna."






Fleiri fréttir

Sjá meira


×