Innlent

Flytja manninn niður Vífilsfell

Um 50 björgunarsveitar- og sjúkraflutningamenn taka þátt í aðgerðinni.
Um 50 björgunarsveitar- og sjúkraflutningamenn taka þátt í aðgerðinni.

Björgunarsveitarmenn af höfuðborgarsvæðinu vinna nú að því að koma karlmanni á sextugsaldri sem slasaðist fyrir hádegi niður Vífilsfell. Maðurinn handleggsbrotnaði þar hann varð fyrir grjóthruni á ellefta tímanum ofarlega í fellinu. Um er að ræða opið beinbrot, að sögn Ólafar Snæhólm upplýsingafulltrúa Landsbjargar.

Áður en lagt var af stað með manninn niður á börum hlúðu sjúkraflutningamenn að honum. Ólöf býst við að hópurinn komi niður skömmu eftir klukkan þrjú. Um 50 björgunarsveitar- og sjúkraflutningamenn taka þátt í aðgerðinni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×