Innlent

Öllu flugi til Húsavíkur aflýst í dag

Öllu flugi til Húsavíkur hefur verið aflýst í dag vegna verkfallsaðgerða Slökkviliðs- og sjúkraflutningamanna á Reykjavíkurflugvelli.

Fjórar vélar áttu að fljúga til Húsavíkur í dag, klukkan tvö, fjögur, fimm og átta, en eins og fyrr segir hefur þeim ferðum verið aflýst. Samkvæmt upplýsingum frá Flugfélagi Íslands munu þeir farþegar sem áttu bókað flug til Húsavíkur í dag geta fengið endurgreitt eða farið til Akureyrar á morgun.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×