Lífið

Grúsk-hópurinn með nýtt lag

Einar Oddsson er forsprakki hljómsveitarinnar Grúsk sem er að undirbúa sína fyrstu plötu. fréttablaðið/stefán
Einar Oddsson er forsprakki hljómsveitarinnar Grúsk sem er að undirbúa sína fyrstu plötu. fréttablaðið/stefán

Hljómsveitin Grúsk hefur sent frá sér lagið Til lífs á ný og er það annað lagið sem fer í spilun af fyrstu plötu sveitarinnar sem kemur út seinna á árinu. Hið fyrra heitir Góða skapið og var í sjö vikur á meðal 30 vinsælustu laga Rásar 2 í haust.

Grúsk er óvenjuleg hljómsveit því hún samanstendur af 22 manna hópi söngvara og hljóðfæraleikara, þar á meðal Bergsveini Arilíussyni, sem syngur einmitt Til lífs á ný, Magnúsi Þór Sigmundssyni, Guðmundi Péturssyni og Ásgeiri Óskarssyni.

„Þetta byrjaði eiginlega fyrir fjórum árum," segir forsprakkinn og lagahöfundurinn Einar Oddsson, sem velur tónlistarmenn úr hópnum eftir því sem best hentar hverju sinni. „Ég fór til Péturs Hjaltested og ætlaði að taka upp eitt til tvö lög. Ég kom með sex lög og við gátum ekki gert upp á milli þeirra og tókum þau öll upp. Síðan hefur þetta verið að þróast með hléum." Að sögn Einars er draumurinn að halda eina góða tónleika þegar platan kemur út.

„Við myndum velja sex til sjö manna hóp til að spila undir. Síðan er spurning hvort maður væri með alla söngvarana," segir hann.

Einar hefur verið viðloðandi tónlistarbransann í mörg ár. Hann samdi lög á sólóplötu Rúnu Stefánsdóttur sem kom út fyrir sex árum og hefur átt tvö lög í undankeppni Eurovision. Hið fyrra hét Í villtan dans sem Rúna söng árið 2001 og á síðasta ári söng Erna Hrönn lagið Glópa­gull. Hann segir nýju tónlistina þó vera af allt öðrum toga.

„Þetta er svolítið grúsk eins og nafnið gefur til kynna. Maður er að leita í gamla áhrifavalda frá áttunda áratugnum og svo koma Bítlarnir sterkir þarna inn í bland við nýrri strauma."

Nýtt myndband við lagið Til lífs á ný má finna á Facebook-síðu Grúsks. Fleiri upplýsingar má finna á Myspace.com/gruskmusik. freyr@frettabladid.is








Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.