Ný Danskir með nýtt lag í nýjum Gauragangi 30. janúar 2010 07:00 Leikhópurinn hefur tekið smá breytingum frá því sem upphaflega var gert ráð fyrir. Birgitta Birgisdóttir tekur við hlutverki Höllu af Ilmi Kristjánsdóttur en þeir Hallgrímur Óskarsson og Guðjón Davíð Karlsson verða Ormur og Ranúr. Valgerður Guðnadóttir leikur draumadísina Lindu og Þorsteinn Gunnarsson verður Hreiðar, nágranni Orms. Þá mun sjálfur Sveppi leika Sveitó og Þröstur Leó er stjúpi Orms. Leikstjóri er Magnús Geir Þórðarson. „
Þetta var nú hugmynd hjá Magnúsi Geir, að við í Ný Dönsk myndum semja nýtt lag. Síðan völdu hann, Ólafur Haukur Ólafsson, Gói [Guðjón Davíð] og Hallgrímur Óskarsson hentugasta lagið og það reyndist vera mitt. Ég hef nú reyndar verið sakaður um það af hinum strákunum að hafa eitthvað átt við niðurstöðurnar af því að ég er tónlistarstjóri sýningarinnar en það er af og frá og algjörlega úr lausu lofti gripið,“ segir Jón Ólafsson, tónlistamaður og tónlistarstjóri sýningarinnar Gauragangur. Nýtt lag frá hljómsveitinni Ný Dönsk verður að finna í nýrri uppfærslu Borgarleikhússins sem Magnús Geir Þórðarson leikstýrir. Lagið heitir Vertu með og verður sungið af Ormi og Ranúr, þeim Guðjóni Davíð og Hallgrími. Jón segir þá staðreynd vera sérstaklega skemmtileg. „Í gömlu uppfærslunni var nefnilega svo lítið af lögum fyrir Ranúr en nú fær hann að láta ljós sitt skína,“ segir Jón. Ný Danskir tóku mikinn þátt í uppfærslu Þjóðleikhússins á sínum tíma, höfðu sínar eigin línur og dönsuðu meira að segja. Þeir verða hins vegar víðsfjarri að þessu sinni, enda hluti hennar orðin of feit og gömul fyrir slíka leiki, svo notuð séu orð tónlistarstjórans sjálfs. „Annars er tónlistin sjálf skárri en ég hélt. Þótt henni hafi aðeins verið ýtt til hliðar þá hafa bæði framhaldsskólar og áhugamannaleikhús sett þessa sýningu reglulega upp og maður hefur því aldrei losnað almennilega frá henni,“ segir Jón og bætir því við að upphafið megi rekja til þess að Ný Danskir sátu á hótelherbergi útí Eyjum eftir að hafa spilað á Þjóðhátíð með handrit leikritsins fyrir framan sig og síðan hafi hverjum og einum verið úthlutað verkefni. „Því má alveg segja að tónlistin sé eftir okkur alla.“ Jón býst fastlega við því að hraðinn verði aðeins keyrður upp í tónlistinni en hann hefur fengið til sín einvalalið hljóðfæraleikara í „hljómsveit hússins“. „Þetta eru þeir Kristin Agnarsson á trommur, Ingibjörn Ingason spilar á bassa, Börkur Birgisson og Stefán Magnússon spila á gítar og Þorbjörn Sigurðsson verður á hljómborðinu.“ Jón segir fínt að fá tækifæri til að vinna að þessari sýningu aftur. „Það var skemmtilegt að vera þáttakandi síðast, nú fær maður hins vegar tækifæri til að bæta um betur.“ freyrgigja@frettabladid.is
Mest lesið Hætt saman en ennþá vinir Lífið Þreföld útgáfa Drake: „Þessi gaur er stærsti rappari allra tíma“ Tónlist Madonna með heitustu dansmynd ársins Tónlist Segir Weinstein hafa bannað sér að vera lesbía Lífið Varð ástfanginn á sama tíma og móðir hans kvaddi Lífið Vigdís Häsler og Sveinn Andri gengu í hnapphelduna Lífið Enginn venjulegur sjötugur maður Gagnrýni Stjörnulífið: Rapparar ástfangnir upp fyrir haus Lífið Sigurjón Sighvatsson heiðraður í Locarno Bíó og sjónvarp Adam Páls fann ástina í örmum Moniku Lífið Fleiri fréttir Segir Weinstein hafa bannað sér að vera lesbía Hætt saman en ennþá vinir Varð ástfanginn á sama tíma og móðir hans kvaddi Lára Clausen lýsir eftir stolnum Mustang Blendnar tilfinningar að fara á vinnumarkað á ný Lofuðu svörtu fólki lækningu en blekktu það til dauða „Ég passaði mig sérstaklega á því að tala ekki um Evrópusambandið“ Vigdís Häsler og Sveinn Andri gengu í hnapphelduna Huggulegustu hommar landsins „loksins“ giftir Adam Páls fann ástina í örmum Moniku Stjörnulífið: Rapparar ástfangnir upp fyrir haus Myndaveisla: Líf og fjör úti á Granda Hringdi strax í pabba og sagði honum frá Bond-leiknum Krakkatía vikunnar: Jónas, þjóðardýr og einmanalegt áhugamál Verður yngsta skvettan í þingflokki Sjálfstæðismanna Vesturbæingar kvöddu sögufræga bensínstöð Allt að verða klárt fyrir Sjómannadaginn í Reykjavík Allir og amma þeirra senda kónginum afmæliskveðju Fann ástina á Tinder og endaði í Texas Þegar tónlistin heltók lögmanninn Fréttatía vikunnar: Dua, Danir og Carpenter Anthony Head er látinn Emilíana Torrini selur einbýlishús á 250 milljónir „Aldrei of seint að gera hlutina“ „Þetta skiptir okkur mjög miklu máli“ Einmanalegt áhugamál fjögurra íslenskra stráka Krónprinsessan inn og út af sjúkrahúsi „Við höfum oftar en einu sinni fundið hann í fjöru“ „Núna stjórna stelpur landinu og strákar klippa hár“ Uppgötvuð á götum Barcelona Sjá meira