Innlent

Fleiri skurðaðgerðir án innlagna

Mynd/Haraldur Jónasson

Komum á dagskurðdeildir á Landspítala hefur fjölgað um 170 prósent á fyrstu átta mánuðum ársins 2010 miðað við árið áður. Skurðaðgerðir eru nú í vaxandi mæli gerðar án innlagna. Þetta segir Björn Zoëga, forstjóri Landspítalans, í pistli á heimasíðu spítlans.

Þar kemur fram að starfsemi dagskurðdeilda Landspítalans hefur aukist mjög á árinu 2010 en það er í takt við áætlun spítalans um að færa þjónustu frá legudeildum til dag- og göngudeilda.

„Alls hefur komum á dagskurðdeildir fjölgað um meira en 170% á fyrstu átta mánuðum ársins. Fjölgunin er annars vegar vegna þess að skurðaðgerðir eru nú í vaxandi mæli gerðar án innlagnar en einnig hefur ýmis þjónusta við hvern sjúkling, sem áður fór fram á legudeildum, færst yfir á dagdeildir," segir Björn.

Mynd/Pjetur
Í næstu vika verða birtar svokallaðar starfsemistölur fyrir fyrstu átta mánuði ársins. „Þar er að vænta fleiri athyglisverðra talna um starfsemi á háskólasjúkrahúsinu á þessu tímabili. Nokkur samdráttur hefur orðið í starfseminni í heild en eins og ég hef áður nefnt eru líka færri hendur sem vinna verkin," segir Björn.

Þá segir Björn: „Komum á allar bráðamóttökur spítalans hefur fækkað um 4,2% þótt komum hafi fjölgað verulega á bráðamóttökuna í Fossvogi. Fækkunina má m.a. rekja til breytts verklags og skráningar á bráðamóttökum geð- og kvennadeilda. Á bráðamóttöku barna hefur komum fækkað um því sem næst 12%. Við höldum áfram að ná þeim markmiðum okkar að fækka rannsóknum og er fækkunin tæplega 19%."




Fleiri fréttir

Sjá meira


×