Innlent

Grindvíkingur fékk millinafnið Grindvík samþykkt

Matthías Grindvík Guðmundsson.
Matthías Grindvík Guðmundsson. Grindavík.is
Grindvíkingur fékk millinafnið Grindvík samþykkt hjá mannanafnanefnd. Hann heitir í dag Matthías Grindvík Guðmundsson. Þetta kemur fram í frétt á vef Grindavíkur.

„Mér datt þetta í hug fyrir mörgum árum. Ég hef verið í veikindafríi og hundleiddist og ákvað að láta verða af þessu til að drepa tímann. Ég skrifaði bréf til Þjóðskrár og sótti um millinafnið Grindvík, það fór fyrir mannanafnanefnd og nú hefur ég bréf upp á það frá Þjóðskrá að ég heiti Matthías Grindvík Guðmundsson," segir hann í samtali við vef Grindavíkur.

„Grindvík er fallegt og rökrétt nafn. Sjáðu bara Njörð P. Njarðvík. Þetta er af sama toga, kannski ég fari að skrifa bækur eins og hann, ég hef ekkert annað að gera þessa dagana. Ég er upphaflegur Grindvíkingur, skrapp í burtu en kom aftur, fæddur í Tröð við Kirkjustíg, pabbi var héðan og hans systkini þannig að ég er Grindvíkingur og er stoltur af þessu nafni," segir Matthías.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×