Toshiki syngur fyrir Gillz 5. nóvember 2010 06:00 Toshiki Toma sagði það ekki hafa verið létt að flytja Yesterday Once More, hann hefði helst viljað syngja Frank Sinatra. Fréttablaðið/Anton „
Þetta gekk bara vel, held ég, allavega var þetta mjög skemmtilegt,“ segir Toshiki Toma, prestur innflytjenda á Íslandi. Tökur standa nú yfir á sjónvarpsþáttaröð upp úr bók Egils „Gillz“ Einarssonar, Mannasiðir Gillz, sem Hannes Þór Halldórsson leikstýrir. Og á miðvikudagskvöld var blásið til allsherjar karókí-veislu. Eins og lög gera ráð fyrir varð auðvitað að hafa japanskan þátttakanda til að fanga rétta andrúmsloftið enda á karókí rætur sínar að rekja til Japans. Toshiki brást snöggur við beiðni um að syngja og tók lagið fyrir myndavélarnar. „Mig langaði fyrst til að syngja Frank Sinatra enda hefur hann verið í miklu uppáhaldi hjá mér. En það var einhver annar búinn að velja hann,“ útskýrir Toshiki, sem varð þá að velja Carpenters-lagið Yesterday Once More og flutti það auðvitað með glæsibrag. Hannes Þór Halldórsson, leikstjóri þáttanna, var ákaflega ánægður með klerkinn og hans framlag. „Við vorum að fara þarna í hvernig maður á að haga sér í karókí og hvernig ekki,“ segir Hannes. Tökur á leikna hluta þáttaraðarinnar hafa staðið yfir í tólf daga og fjölda þjóðþekktra einstaklinga bregður þar fyrir, meðal annars Agli Ólafssyni, Eddu Björgvinsdóttur, Gísla Erni, Birgi Leifi og svo bregður Ásgeiri Kolbeins fyrir í litlu „feluhlutverki“. Aðalhlutverkin eru hins vegar í höndunum á Halldóri Gylfasyni, Jóhannesi Hauki, Steinda, Víkingi Kristjánssyni og Eddu Björg Eyjólfsdóttur. Hannes segir að nú verði hins vegar farið í upptökur á hetjunni sjálfri.- fgg
Mest lesið „Þetta er bara fjárhagslegt ofbeldi“ Lífið Ólöf og Magnús ástfangin á frumsýningu Menning Tútturnar úti á Grammy-hátíðinni Tíska og hönnun Fjölskyldan veik af fíknivanda en alltaf staðið þétt saman Lífið Vaskir Valsmenn hressir á Hlíðarenda Lífið Þær keppa í Ungfrú Ísland 2026 Lífið Hestastelpa úr sveit og sjóðheitur hönnuður Menning „Hvernig ég er að gera þetta núna er ekki hægt til lengri tíma“ Lífið Tók Indriða í pontu og uppskar hláturskast í þingsal Lífið Fundu ástina í stjórnarráðinu Lífið Fleiri fréttir „Hvernig ég er að gera þetta núna er ekki hægt til lengri tíma“ Tók Indriða í pontu og uppskar hláturskast í þingsal X-ið bætir við sig Bolla Vaskir Valsmenn hressir á Hlíðarenda „Þetta er bara fjárhagslegt ofbeldi“ „Ekki er þetta uppáhaldslagið þitt?“ Forsetinn hótar lögsókn: „Vertu viðbúinn Noah“ „Þakklát fyrir að eiga stóran orkutank inni í litlum búk“ Þær keppa í Ungfrú Ísland 2026 „Ekki láta aldurinn eða stoltið stoppa þig“ Hvernig breytirðu þér í Dag Sigurðsson? Leyndardómar flugvallarins í Denver: Dómsdagsbyrgi, hakakrossar og blár hestur með rauðglóandi augu Fundu ástina í stjórnarráðinu Íslenskt par í Köben stofnar nýjan leikjavef Fjölskyldan veik af fíknivanda en alltaf staðið þétt saman Þessi fengu Grammy og sendu ICE-kaldar kveðjur Stjörnulífið: Dorrit og Pharrell Williams í fíling Laufey Lín fékk önnur Grammy-verðlaun Laufey gæti orðið tvöfaldur Grammy-verðlaunahafi í nótt Kynlíf á ekki að vera vont Dagur kvenfélagskonunnar er í dag 1. febrúar Dýrðardagur í Kenýa endaði með bónorði Listamenn safna fyrir 10 ára dreng á Selfossi í dag Úr söngvakeppni í fegurðarsamkeppni Krakkatían: Gott kvöld, handboltinn og Tene Fékk „karlrembu, transfóbíu og rasisma“ í flasið á skurðstofunni Í krabbameinsmeðferð og fæðingarorlofi á sama tíma Höfðu loks efni á uppsetningu eftir íbúðarkaupin Fréttatía vikunnar: Handboltinn, SA og tvífarar Jói Fel málar með puttunum Sjá meira
Leyndardómar flugvallarins í Denver: Dómsdagsbyrgi, hakakrossar og blár hestur með rauðglóandi augu