Sami meirihluti við völd í 20 ár 12. maí 2010 05:00 Það er gott að búa í Kópavogi var frægt slagorð Gunnars I. Birgissonar, fyrrverandi bæjarstjóra. Störf hans hafa verið í brennidepli umræðunnar um málefni Kópavogsbúa síðustu ár.
Kjörtímabilið hefur verið stormasamt í bæjarpólitíkinni í Kópavogi. Hart hefur verið tekist á um skipulagsmál. Meirihlutinn hefur verið sakaður um spillingu. Ráðstöfunum stjórnar Lífeyrissjóðs starfsmanna Kópavogsbæjar í kjölfar hrunsins haustið 2008 var vísað til lögreglurannsóknar. Þrír bæjarfulltrúar sátu þá í stjórninni, Gunnar I. Birgisson bæjarstjóri, Flosi Eiríksson, Samfylkingu, og Ómar Stefánsson, Framsóknarflokki. Gunnar vék úr embætti bæjarstjóra og tók sér leyfi úr bæjarstjórn, vegna þessa máls. Gunnsteinn Sigurðsson tók við af Gunnari og hefur verið bæjarstjóri síðasta ár kjörtímabilsins. Hann kaus að leita ekki eftir endurkjöri og sakaði Gunnar um að vinna gegn sér. Einnig var hart deilt á Gunnar I. Birgisson vegna umdeildra viðskipta bæjarins við fyrirtæki í eigu dóttur hans. Um tíma hrikti í meirihlutasamstarfi Framsóknarflokks og Sjálfstæðisflokks vegna þeirra mála en meirihlutinn stóð þær deilur af sér. Ekki er þó vafi á því að margir sjálfstæðismenn eru enn sárir eftir átök við flokksbræður sína í bænum síðustu misseri. Í prófkjöri flokksins bar Ármann Kr. Ólafsson, forseti bæjarstjórnar, naumlega sigurorð af Gunnari I. Birgissyni. Skipulagsmál hafa hvað eftir annað orðið tilefni harðra deilna í Kópavogi síðustu ár. Harðastar urðu þær vegna fyrirhugaðrar uppbyggingar á Kársnesi en einnig urðu langvinnar deilur vegna landakaupa í landi Glaðheima og við Vatnsenda. Kópavogur er það sveitarfélag sem vaxið hefur hvað hraðast undanfarna áratugi. Miklar byggingaframkvæmdir stóðu yfir í nýjum hverfum og fjölmörgum byggingarlóðum hafði nýlega verið úthlutað þegar efnahagslífið hrundi. Í kjölfar þess hefur bæjarsjóður orðið fyrir nokkru áfalli vegna þess að byggingarlóðum hefur verið skilað í miklum mæli með gríðarlegum útgjöldum fyrir bæjarsjóð. Sjálfstæðisflokkurinn hefur nú fimm bæjarfulltrúa af ellefu í bæjarstjórn Kópavogs, Framsóknarflokkurinn einn, Samfylkingin fjóra og Vinstri grænir einn. Oddvitar meirihlutaflokkanna tveggja segjast ganga óbundnir til kosninga. Oddvitar minnihlutans telja hins vegar víst að meirihlutasamstarfið verði endurnýjað nema kjósendur gefi skýr skilaboð um annað. Lokasprettur kosningabaráttunnar er fram undan. Kjósendur hafa úr sjö framboðslistum að velja. Auk stóru flokkanna fjögurra, sem eiga fulltrúa í bæjarstjórn, býður Frjálslyndi flokkurinn fram lista í Kópavogi. Það gerir einnig Y-listi Kópavogsbúa, sem eru óháðir flokkum og embættismönnum. Næst besti flokkurinn teflir fram landsþekktum leikara, Hjálmari Hjálmarssyni, í fyrsta sæti. Hann segir að þeir vindar sem veitt hafa Bestaflokknum meðbyr í Reykjavík blási einnig í Kópavogi. Meirihluti Framsóknarflokks og Sjálfstæðisflokks hefur nú verið við völd í Kópavogi í tuttugu ár. Könnun sem Fréttablaðið gerði í Kópavogi fyrir mánuði gaf til kynna að sá meirihluti njóti stuðnings um 51% kjósenda. Athygli vakti þó að einungis 54,9% aðspurðra höfðu tekið afstöðu. Úrslitin eru því hvergi nærri ráðin.
Mest lesið Sex handteknir og um verulegt magn sterkra efna að ræða Innlent „Ég reikna sterklega með því að karma banki upp á hjá þeim“ Innlent Hafi selt alls konar fíkniefni í gegnum „Kannabis Inc“ Innlent Góðkunningjar lögreglu grunaðir í stóru dópmáli Innlent Tveir handteknu starfsmenn Eimskipa Innlent Segist ekki munu biðja páfa afsökunar Erlent Áfrýja ekki dómi vegna dauða dóttur þeirra Innlent Hyggst banna mánaðarlega hækkun leigu Innlent Unnar kjötvörur af matseðli í skólum: „Stranglega bannað að hafa pylsupartý“ Innlent Vilja verða áheyrnarfulltrúar og hækka laun sín gríðarlega Innlent Fleiri fréttir „Það gerist ekkert ef ljósin eru slökkt“ Ný atvinnustefna vanmeti stærstu tæknibreytingu samtímans Eftirför lögreglu endaði á Sorpu Tveir handteknu starfsmenn Eimskipa Skorað á Guðmund að snúa aftur heim Slagsmál, falsað ökuskírteini og ölvunarakstur Keyrðu utan í bílinn í eftirförinni Endurskoða gjaldsvæði borgarinnar Verulegt magn fíkniefna og hönnunarbolli í vorgjöf Flogið til Vestmannaeyja til mánaðamóta „Þyngra fyrir fæti að fá vinnu“ Hælisleitendamálin settu þrýsting á Reykjanesbæ Vilja verða áheyrnarfulltrúar og hækka laun sín gríðarlega Unnar kjötvörur af matseðli í skólum: „Stranglega bannað að hafa pylsupartý“ Sex handteknir og um verulegt magn sterkra efna að ræða Ekki hægt að taka framboð gilt þó flokkur misskilji reglur Góðkunninginn í vikulangt gæsluvarðhald vegna smygls Kvikuhlaup enn líklegasta sviðsmyndin Áfrýja ekki dómi vegna dauða dóttur þeirra Slökkti í málskotsbeiðni Matvís vegna Flame Sundlaugar opnar lengur um helgar í sumar Hyggst banna mánaðarlega hækkun leigu Ari hlær að gagnrýni á myndbandið Kosningapallborð fréttastofu: Baráttan um Reykjanesbæ Fimm hundruð bleikjur sluppu úr landeldisstöð „Ég reikna sterklega með því að karma banki upp á hjá þeim“ Betur fór en á horfðist við Mývatn: Lenti á þvervegi og tókst á loft Ekkert að frétta af rannsókn þjófnaðarins í Freysnesi Góðkunningjar lögreglu grunaðir í stóru dópmáli Byrja ekki að sekta á morgun Sjá meira