Innlent

Sami meirihluti við völd í 20 ár

Það er gott að búa í Kópavogi var frægt slagorð Gunnars I. Birgissonar, fyrrverandi bæjarstjóra. Störf hans hafa verið í brennidepli umræðunnar um málefni Kópavogsbúa síðustu ár.
Það er gott að búa í Kópavogi var frægt slagorð Gunnars I. Birgissonar, fyrrverandi bæjarstjóra. Störf hans hafa verið í brennidepli umræðunnar um málefni Kópavogsbúa síðustu ár.
Kjörtímabilið hefur verið stormasamt í bæjarpólitíkinni í Kópavogi. Hart hefur verið tekist á um skipulagsmál. Meirihlutinn hefur verið sakaður um spillingu.

Ráðstöfunum stjórnar Lífeyrissjóðs starfsmanna Kópavogsbæjar í kjölfar hrunsins haustið 2008 var vísað til lögreglurannsóknar. Þrír bæjarfulltrúar sátu þá í stjórninni, Gunnar I. Birgisson bæjarstjóri, Flosi Eiríksson, Samfylkingu, og Ómar Stefánsson, Framsóknarflokki. Gunnar vék úr embætti bæjarstjóra og tók sér leyfi úr bæjarstjórn, vegna þessa máls.

Gunnsteinn Sigurðsson tók við af Gunnari og hefur verið bæjarstjóri síðasta ár kjörtímabilsins. Hann kaus að leita ekki eftir endurkjöri og sakaði Gunnar um að vinna gegn sér. Einnig var hart deilt á Gunnar I. Birgisson vegna umdeildra viðskipta bæjarins við fyrirtæki í eigu dóttur hans. Um tíma hrikti í meirihlutasamstarfi Framsóknarflokks og Sjálfstæðisflokks vegna þeirra mála en meirihlutinn stóð þær deilur af sér. Ekki er þó vafi á því að margir sjálfstæðismenn eru enn sárir eftir átök við flokksbræður sína í bænum síðustu misseri. Í prófkjöri flokksins bar Ármann Kr. Ólafsson, forseti bæjarstjórnar, naumlega sigurorð af Gunnari I. Birgissyni.

Skipulagsmál hafa hvað eftir annað orðið tilefni harðra deilna í Kópavogi síðustu ár. Harðastar urðu þær vegna fyrirhugaðrar uppbyggingar á Kársnesi en einnig urðu langvinnar deilur vegna landakaupa í landi Glaðheima og við Vatnsenda.

Kópavogur er það sveitarfélag sem vaxið hefur hvað hraðast undanfarna áratugi. Miklar byggingaframkvæmdir stóðu yfir í nýjum hverfum og fjölmörgum byggingarlóðum hafði nýlega verið úthlutað þegar efnahagslífið hrundi. Í kjölfar þess hefur bæjarsjóður orðið fyrir nokkru áfalli vegna þess að byggingarlóðum hefur verið skilað í miklum mæli með gríðarlegum útgjöldum fyrir bæjarsjóð.

Sjálfstæðisflokkurinn hefur nú fimm bæjarfulltrúa af ellefu í bæjarstjórn Kópavogs, Framsóknarflokkurinn einn, Samfylkingin fjóra og Vinstri grænir einn. Oddvitar meirihlutaflokkanna tveggja segjast ganga óbundnir til kosninga. Oddvitar minnihlutans telja hins vegar víst að meirihlutasamstarfið verði endurnýjað nema kjósendur gefi skýr skilaboð um annað.

Lokasprettur kosningabaráttunnar er fram undan. Kjósendur hafa úr sjö framboðslistum að velja. Auk stóru flokkanna fjögurra, sem eiga fulltrúa í bæjarstjórn, býður Frjálslyndi flokkurinn fram lista í Kópavogi. Það gerir einnig Y-listi Kópavogsbúa, sem eru óháðir flokkum og embættismönnum. Næst besti flokkurinn teflir fram landsþekktum leikara, Hjálmari Hjálmarssyni, í fyrsta sæti. Hann segir að þeir vindar sem veitt hafa Bestaflokknum meðbyr í Reykjavík blási einnig í Kópavogi.

Meirihluti Framsóknarflokks og Sjálfstæðisflokks hefur nú verið við völd í Kópavogi í tuttugu ár. Könnun sem Fréttablaðið gerði í Kópavogi fyrir mánuði gaf til kynna að sá meirihluti njóti stuðnings um 51% kjósenda. Athygli vakti þó að einungis 54,9% aðspurðra höfðu tekið afstöðu. Úrslitin eru því hvergi nærri ráðin.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×