Innlent

Falsaður fimmþúsundkall í umferð

Lögreglunni á Vestfjörðum hefur borist kæra vegna framvísunar 5.000.- kr. peningaseðils sem reyndist falsaður. Í tilkynningu frá lögreglu segir að seðillinn hafi verið afhentur í verslun einni á Ísafirði fyrr í dag. Lögreglan á Vestfjörðum er með málið til rannsóknar.

Lögreglan vill hvetja verslunarfólk og aðra þá er taka við peningaseðlum í viðskiptum að vera á varðbergi og rifja upp þá öryggisþætti sem finna má á peningaseðlum á heimasíðu Seðlabanka Íslands.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×