Plægja þarf hundrað hektara túns 29. apríl 2010 04:00 Öskufall Hefur leikið margar jarðir undir Eyjafjöllum illa.
Tæpir sextíu hektarar túns á Önundarhorni, sem lentu undir aurflóðinu af völdum gossins í Eyjafjallajökli á dögunum, eru ónýtir. Plægja þarf þá upp aftur, að sögn Sigurðar Þórs Þórhallssonar bónda á jörðinni. Hinn hluti túnsins, á fimmta tug hektara, liggur undir ösku. Sigurður telur að þann hluta þurfi einnig að plægja og sá í til að losna við öskuryk sem ella myndi þyrlast upp og setjast í heyið í sumar. Hann telur að einhver heyfengur fáist af túnunum, en ljóst sé að hann verði að kaupa hey til viðbótar. Rúm vika er nú síðan koldimmu gosöskufalli linnti á jörðinni. „Við erum nýlega byrjaðir að keyra drullunni burt, sem rann yfir jörðina í aurflóðinu á dögunum,“ segir Sigurður. „Sú vinna gæti tekið allt að sjö daga. Eftir það held ég að maður verði að taka stöðuna, meðal annars með tilliti til hættu á frekara öskufalli.“ Sigurður er með kúabú. Kýrnar kveðst hann ef til vill geta sett út í júní, á grænfóður og hey, en hina nautgripina alls ekki í sumar. Hey verði hann að kaupa með vorinu. „En það er ótrúlegt hvað margir nær og fjær eru boðnir og búnir til að aðstoða við hreinsunina,“ segir Sigurður og kveður það ómetanlegan stuðning.-jss
Mest lesið Áslaug Arna boðar endurkomu á Alþingi Innlent Gripinn í blokk við þvottastúss eftir árásina Innlent Kallar aðgerðirnar leiktjöld og varar við verðstýringu Innlent CNN og ABC fjalla um Eyjaflugið Innlent Suður-Grænland fær nýjan alþjóðaflugvöll Erlent Fleiri andvígir aðild nú en í fyrra Innlent Dómur yfir Helga Bjarti: Fara þyrfti varlega í að draga ályktanir út frá framburði drengsins Innlent Ingimar er bæjarstjóraefni D-listans í í Hveragerði Innlent Bækurnar of leiðinlegar og forritaði stærðfræðitölvuleik Innlent „Nú hef ég auðvitað ekkert á móti fólki frá Nígeríu“ Innlent Fleiri fréttir Kallar aðgerðirnar leiktjöld og varar við verðstýringu CNN og ABC fjalla um Eyjaflugið Áslaug Arna boðar endurkomu á Alþingi Gripinn í blokk við þvottastúss eftir árásina Fleiri andvígir aðild nú en í fyrra Ingimar er bæjarstjóraefni D-listans í í Hveragerði Bækurnar of leiðinlegar og forritaði stærðfræðitölvuleik „Vélin að bila og hún stingur upp á að við skiptum um áklæði“ Lögðu hald á um tug lítra fíkniefna Æfir kennarar og varað við verðstýringu Mótorinn í Herjólfi þarf til útlanda Margir sátu hjá þegar launin voru hækkuð Halla Bergþóra nýr ríkislögreglustjóri „Nú hef ég auðvitað ekkert á móti fólki frá Nígeríu“ Dómur yfir Helga Bjarti: Fara þyrfti varlega í að draga ályktanir út frá framburði drengsins Rannsóknin á lokametrunum Fjórir landsréttardómarar vilja taka skrefið í Hæstarétt Forsetar Íslands og Slóveníu ræða leiðtogahlutverk í breyttum heimi Segir forsætisráðuneytið misnotað í þágu sveitarstjórnarkosninga Sjálfsmark með „sjúklega samfylkingarlegu“ kjötvörubanni Framkoman laði ekki lækna að Landspítalanum Ók á móti umferð í Hvalfjarðargöng með lögregluna á hælunum Helgi Bjartur dæmdur í tólf mánaða fangelsi Eimskip líta smyglið mjög alvarlegum augum „Já, ég er dálítið reiður“ Matarstefnan bara „orð út í loftið“ Töldu framboðinu ekki til framdráttar að mæta í þáttinn Verð á stökum miða í sund hækkar en árskortið lækkar Árni vill stöðuna þrátt fyrir auglýsingu Skjálfti vegna Írisar innan Sjálfstæðisflokksins í Eyjum Sjá meira
Dómur yfir Helga Bjarti: Fara þyrfti varlega í að draga ályktanir út frá framburði drengsins Innlent
Dómur yfir Helga Bjarti: Fara þyrfti varlega í að draga ályktanir út frá framburði drengsins Innlent