Stefna að því að halda Landsmót hestamanna í sumar 21. maí 2010 17:50
Í dag fór fram fundur í sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytinu með öllum hagsmunaaðilum innan hestamennskunnar samkvæmt tilkynningu frá Landssambandi hestmamannafélaga. Tilgangur fundarins var að fá heildarsýn yfir stöðu mála vegna hóstapestarinnar svonefndu. Síðast liðinn mánudag skipaði Halldór Runólfsson yfirdýralæknir nefnd, en í henni eiga sæti Sigríður Björnsdóttir, dýralæknir hrossasjúkdóma, Guðlaugur Antonsson hrossaræktarráðunautur og Sveinn Ólason dýralæknir. Þau hafa verið að safna öllum tiltækum upplýsingum um veikina og kynnti Sigríður helstu niðurstöður á rannsóknum þeirra og veitti ráðgjöf í ljósi þeirra. Ljóst er að miklir hagsmunir eru í húfi, ekki síst er varðar Landsmót hestamanna sem fara á fram á Vindheimamelum í Skagafirði 27. júní - 4. júlí. Við ákvarðanatöku var reynt að meta þyngd og alvarleika hóstapestarinnar með tilliti til velferðar hrossa og jafnframt hvort faraldurinn muni verða að miklu leyti genginn yfir þegar úrtökur fyrir landsmótið fara fram. Samþykkt var samhljóða eftirfarandi ályktun: Á sameiginlegum fundi hagsmunaaðila í sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytinu voru aðilar sammála um að stefnt skuli að því að halda Landsmót hestamanna á áður ákveðnum tíma. Aðilar voru sammála um að endurskoða fyrirkomulag og dagsetningar á úrtökum og dómum hrossa fyrir landsmótið með það að leiðarljósi að gera sem flestum hrossum mögulegt að vinna sér þátttökurétt. Hópurinn mun koma saman um næstu mánaðarmót og endurmeta stöðuna.
Mest lesið Maðurinn sem fannst í Ölfusá er látinn Innlent Guðmundur Ingi segir sig úr Flokki fólksins Innlent Flugstjórinn þögull sem gröfin Innlent Æsilegri eftirför lauk í Skútuvogi Innlent Gera ekki aðra atlögu Innlent Fékk uppsagnarbréf og hótar málsókn Innlent „Þetta er ekki það versta sem við höfum lent í“ Innlent Aðstoðarflugmaðurinn gæti talist samábyrgur Innlent Pétur Gautur leggur fram kæru vegna tilhæfulausra ásakana Innlent „Þetta er erfiður mánudagur“ Innlent Fleiri fréttir Vara dýraeigendur við: Gruna að eitrað hafi verið fyrir tveimur dýrum Gæti sektað flugstjóra um allt að átta milljónir króna Óvarfærið orðalag geti orðið til vandræða í áratugi Kristrún hafi staðið sig best en Inga verst Þögul sem gröfin um meintan trúnaðarbrest Maðurinn sem fannst í Ölfusá er látinn Deilt um orðalag á kjörseðli, trúnaðarbrestur og vinsældir ráðherra Fékk uppsagnarbréf og hótar málsókn Miðflokkurinn úr leik í Árborg Krefja Ingu svara við leikskólaáformum Samfylkingarinnar „Við lítum þetta mál mjög alvarlegum augum“ Æsilegri eftirför lauk í Skútuvogi „Þetta er erfiður mánudagur“ Guðmundur Ingi segir sig úr Flokki fólksins Pétur Gautur leggur fram kæru vegna tilhæfulausra ásakana Drengurinn kominn heim til sín Aðstoðarflugmaðurinn gæti talist samábyrgur Gera ekki aðra atlögu Lækka leikskólagjöld til að bregðast við verðbólgu Sjá ekki fyrir endann á ástandinu í fangelsunum Flugstjórinn þögull sem gröfin Lækka gjöld í sveitarfélaginu og fangaverðir segja kerfið komið að þolmörkum Erfiðara að berjast við stjórnvöld en að lifa með náttúruvá „Þetta er ekki það versta sem við höfum lent í“ Fangaverðir segja fangelsiskerfið „algjörlega komið að þolmörkum“ Lundinn sestur upp í Hafnarhólma Ekur niður göngugötu og furðar sig á stæðaleysi Lágflugið vekur athygli erlendis Fimmtíu skjálftar suðvestan við Hestfjall Vonar að skólastarf verði í bænum þrátt fyrir tilmælin Sjá meira