Norðurlöndin í sérflokki 2. febrúar 2010 06:00 Efnilegur kokkur Jóhannes Steinn Jóhannesson keppti fyrir hönd Íslands í hinni árlegu kokkakeppni Nordic Chef of the Year. Fréttablaðið/gva
Jóhannes Steinn Jóhannesson, matreiðslumeistari á veitingastaðnum VOX, tók þátt í hinni árlegu kokkakeppni Nordic Chef of the Year sem fram fór í Herning í Danmörku á miðvikudag. Tíu kokkar tóku þátt í keppninni og lenti Jóhannes Steinn í fjórða sæti. „Þetta er ein erfiðasta kokkakeppni í heimi og eru það kokkar ársins frá hverju landi sem taka þátt. Mér gekk ekki nógu vel því ég lenti í tímahraki með aðalréttinn,“ segir Jóhannes, sem var valinn matreiðslumeistari ársins 2009, annað árið í röð. Þátttakendur fengu að sjá hráefnið sem nota átti kvöldið fyrir keppnina sjálfa og fengu svo þrjár klukkustundir til að bera fyrsta réttinn fram fyrir dómara og eina klukkustund fyrir hvorn rétt eftir það. „Þetta var mjög erfitt og mikið stress. Mér gekk mjög vel með forréttinn og desertinn en lenti aftur á móti í tímahraki með aðalréttinn og það dró mig niður sem var svolítið sárt. Þetta er mjög hörð samkeppni enda eru Norðurlöndin þau sterkustu á sviði matreiðslu í dag og ég tel að við séum löngu komin fram úr Frökkunum. Þróunin á Norðurlöndunum er mjög hröð og mikið af spennandi hlutum að gerast hér á meðan Frakkar hafa staðið svolítið í stað,“ segir Jóhannes að lokum. - sm
Mest lesið „Hæ ástin mín, Nýtt í hverjum mánuði á fimmtudaginn, ertu laus?“ Áskorun Vinsælustu myndböndin á Vísi á árinu Lífið Frægir fjölguðu sér árið 2025 Lífið Sjálfur jólasveinninn skotspónn samsæriskenninga Lífið Bæði sorg og gleði að ala upp fimm börn með sérþarfir Lífið Ásgeir Kolbeins furðu lostinn yfir steini í jólapakkanum Lífið Íslenskur mágur Rex Heuermann efins um ódæði hans Lífið Þakkar Trump í ólettutilkynningunni Lífið Gefa bretti af flugeldum að verðmæti 300.000 króna Lífið samstarf Skilaði týndum heyrnartólum alla leið til Hamborgar Lífið Fleiri fréttir Bæði sorg og gleði að ala upp fimm börn með sérþarfir Sjálfur jólasveinninn skotspónn samsæriskenninga Þakkar Trump í ólettutilkynningunni Íslenskur mágur Rex Heuermann efins um ódæði hans Vinsælustu myndböndin á Vísi á árinu Frægir fjölguðu sér árið 2025 Gítarleikari The Cure er látinn Skilaði týndum heyrnartólum alla leið til Hamborgar Sjáðu nýja stiklu úr stjörnuprýddri hasarmynd Balta Ásgeir Kolbeins furðu lostinn yfir steini í jólapakkanum Viðtöl ársins 2025: Missir, afsögn ráðherra, umsáturseinelti og læknir sem þóttist vera með krabbamein Sat uppi með sex kíló af kæstri skötu Kristmundur Axel tók við af Bubba Seinfeld og Friends-leikari látinn Jólagjafir íslenskra vinnustaða Deildar meiningar um lyktina: „Þetta er byrjendaskata“ Fréttamenn gæða sér á skötu í gegnum árin Laufey á landinu Þar sem vinsælustu lög landsins verða til Þessi smurðu mest á reikning Jommunnar Einhverfir kaþólikkar um allan heim heita Þorlákur Cooper bað móðurina um hönd Hadid „Mér finnst gaman að láta sjokkera mig“ Brúðkaup ársins 2025 Heitt í hamsi hjá gestum á „helvíti á jörðu“ í Breiðholti Chris Rea hefur ekið heim um jólin í síðasta skipti Saga jarðaði alla við borðið Vísa ásökunum Skinner um kosningasvindl á bug Kimmel ávarpar bresku þjóðina: Frábært ár fyrir fasisma „Ég hugsa til þín á hverjum einasta degi“ Sjá meira
Viðtöl ársins 2025: Missir, afsögn ráðherra, umsáturseinelti og læknir sem þóttist vera með krabbamein