Bæjarstjóri Akraness hafnar lögbroti Þorbjörn Þórðarson skrifar 19. maí 2010 18:50
Bæjarstjóri Akraness hafnar því að bærinn hafi brotið lög vegna samnings sem gerður var við fyrirtæki í eigu sonar forseta bæjarstjórnar. Kærunefnd útboðsmála telur bæinn hafa brotið lög, en hefur ekki heimild til að ógilda samninginn. Akraneskaupstaður samdi á síðasta ári við fyrirtækið Securstore um tölvuþjónustu án útboðs. Þetta þótti nokkuð umdeilt þar sem fyrirtækinu er stýrt af og er að hluta í eigu Arnars Gunnarssonar, en hann er sonur Gunnar Sigurðssonar, forseta bæjarstjórnar Akraness. Tekjur fyrirtækisins af viðskiptum við Akranes námu tæplega 25 milljónum króna á árinu 2008 og sextán milljónum króna fyrstu tíu mánuði ársins 2009. Á þessu tímabili fékk fyrirtæki sonarins semsagt rúmlega fjörutíu milljónir króna í tekjur frá bænum. Átján mánaða samningur sem bærinn gerði við fyrirtækið í fyrra var kærður til kærunefndar útboðsmála. Í nýföllnum úrskurði sínum kemst kærunefndin að þeirri niðurstöðu að Akraneskaupstaður hafi brotið lög. En þar segir: "Með vísun til þess sem fyrr er rakið telur kærunefnd að kærði hafi ekki farið að lögum er hann stofnaði til samnings við Tölvuþjónustuna SecurStore ehf. án undangengins útboðs." Kærunefndin telur sig hins vegar ekki hafa heimildir að lögum til að ógilda samninginn, þar sem í lögum um opinber innkaup kemur fram að ekki sé hægt að fella samning úr gildi, eftir að bindandi samningur er kominn á í skilningi laganna, þótt gerð hans hafi verið ólögmæt. Gísli Einarsson, bæjarstjóri Akraness, sagði í samtali við fréttastofu að bæjarstjórn væri því hreinlega ósammála að hún hafi ekki farið að lögum, þrátt fyrir niðurstöðu kærunefndar útboðsmála. "Ég hafna því að bærinn hafi brotið lög," sagði hann og vildi ekki tjá sig um málið að öðru leyti. Akraneskaupstaður ætlar ekki að endurskoða samninginn við Securstore.
Mest lesið Áslaug Arna boðar endurkomu á Alþingi Innlent Gripinn í blokk við þvottastúss eftir árásina Innlent Ölduselsskóla skipt út fyrir Seljaskóla Innlent Kallar aðgerðirnar leiktjöld og varar við verðstýringu Innlent Stjórnvöld í Frakklandi vilja fá ríkisborgara lausan Erlent CNN og ABC fjalla um Eyjaflugið Innlent Að minnsta kosti fimmtán létust í árásum Rússa á Úkraínu Erlent Suður-Grænland fær nýjan alþjóðaflugvöll Erlent „Vélin að bila og hún stingur upp á að við skiptum um áklæði“ Innlent Hafa fundið nýtt jarðhitasvæði á Hellisheiði Innlent Fleiri fréttir Líkamsárás, húsbrot og eignaspjöll Samið við Icelandair um flug til Ísafjarðar Hafa fundið nýtt jarðhitasvæði á Hellisheiði Fagnar fjölgun skráninga í Þjóðkirkjuna Ölduselsskóla skipt út fyrir Seljaskóla Kallar aðgerðirnar leiktjöld og varar við verðstýringu CNN og ABC fjalla um Eyjaflugið Áslaug Arna boðar endurkomu á Alþingi Gripinn í blokk við þvottastúss eftir árásina Fleiri andvígir aðild nú en í fyrra Ingimar er bæjarstjóraefni D-listans í í Hveragerði Bækurnar of leiðinlegar og forritaði stærðfræðitölvuleik „Vélin að bila og hún stingur upp á að við skiptum um áklæði“ Lögðu hald á um tug lítra fíkniefna Æfir kennarar og varað við verðstýringu Mótorinn í Herjólfi þarf til útlanda Margir sátu hjá þegar launin voru hækkuð Halla Bergþóra nýr ríkislögreglustjóri „Nú hef ég auðvitað ekkert á móti fólki frá Nígeríu“ Dómur yfir Helga Bjarti: Fara þyrfti varlega í að draga ályktanir út frá framburði drengsins Rannsóknin á lokametrunum Fjórir landsréttardómarar vilja taka skrefið í Hæstarétt Forsetar Íslands og Slóveníu ræða leiðtogahlutverk í breyttum heimi Segir forsætisráðuneytið misnotað í þágu sveitarstjórnarkosninga Sjálfsmark með „sjúklega samfylkingarlegu“ kjötvörubanni Framkoman laði ekki lækna að Landspítalanum Ók á móti umferð í Hvalfjarðargöng með lögregluna á hælunum Helgi Bjartur dæmdur í tólf mánaða fangelsi Eimskip líta smyglið mjög alvarlegum augum „Já, ég er dálítið reiður“ Sjá meira