Innlent

Erfitt að fá magnýl

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Búist er við því að magnýl verði komið aftur í dreifingu fyrir mánaðamót.
Búist er við því að magnýl verði komið aftur í dreifingu fyrir mánaðamót.
Verkjalyfinu magnýl er ekki dreift hérlendis þessa dagana, samkvæmt upplýsingum frá Hjördísi Árnadóttur, upplýsingafulltrúa Actavis, sem hefur framleitt lyfið fyrir íslenska markaðinn.

Hjördís segir að um tímabundið ástand sé að ræða og að vonast sé til þess að lyfið verði komið í dreifingu fyrir næstu mánaðamót. Á meðan geti fólk fengið lyf með sömu virkni frá öðrum framleiðendum í apótekum. Þá sé líka hægt að fá paratabs og íbúfen í apótekum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×