Krefja Gylfa frekari svara um lánamálin 16. ágúst 2010 06:00 Gylfi Magnússon situr fyrir svörum á fundi þingflokks Samfylkingar í dag. fréttablaðið „
Frá mínum bæjardyrum séð skiptir mestu að fá svör við því hvaða upplýsingar lágu fyrir þegar gengið var frá uppskiptingu gömlu ríkisbankanna. Hvernig menn voru undirbúnir þar,“ segir Magnús Orri Schram, þingmaður Samfylkingar og varaformaður viðskiptanefndar Alþingis. Þingflokkur Samfylkingarinnar fær Gylfa Magnússon, efnahags- og viðskiptaráðherra, á sinn fund í dag til að fara yfir óvissuna um lögmæti gengistryggðra lána og svör hans við fyrirspurn um þau á þingi síðastliðið sumar, sem hávær umræða hefur verið um í þjóðfélaginu síðustu daga. Að mati Magnúsar Orra hefur Gylfi útskýrt nægilega sína hlið málsins og beðist afsökunar á óskýrleika. „Ef menn biðjast afsökunar, þá skilur maður það. Þetta stendur hins vegar eftir og er stóra málið núna,“ segir Magnús, og vísar þar til samninga um kaup ríkisins á eignarhlut í viðskiptabönkunum þremur, sem urðu til þess að ríkið eignaðist í lok síðasta árs 81 prósent í Landsbanka, 13 prósent í Arion banka og fimm prósent í Íslandsbanka. „Það var vitað að um lögmæti þessara lána var deilt, og þessi óvissa hefði átt að endurspeglast í samningnum. Þetta getur skipt okkur verulegu máli, sérstaklega hvað varðar Landsbankann,“ segir Magnús Orri. Það var Steingrímur J. Sigfússon fjármálaráðherra sem stjórnaði samningaviðræðum um uppgjör bankanna. Hann segir algerlega ótímabært að vera með vangaveltur um áhrif óvissu um lánasöfn bankanna á samningana við ríkið: „Það verða einhverjir aðrir spraðabassar að æfa sig í því. Þarna eru miklir hagsmunir í húfi.“ Steingrímur segir að niðurstaða samninganna verði bara að fá að tala sínu máli. „Hún var að mínu mati ríkinu hagstæð og þýddi að ríkið batt í þetta miklu minna fé en upphaflega stóð til. Í öðru lagi held ég að aðferðin sem notuð var sanni gildi sitt í þessu, að það er slegið hring utan um ákveðna óvissu í eignamatinu eins og í tilviki Landsbankans. Í þriðja lagi er of snemmt að segja nákvæmlega til um það hvort og í hve miklum mæli þetta hefur áhrif vegna þess að við erum ekki komin með endanlega niðurstöðu dómstóla um það hvernig með þessi lán verði farið, og við erum heldur ekki komin með endanlega niðurstöðu í því hversu víðtækt umfangið verður.“ gudsteinn@frettabladid.is
Mest lesið „Við þurfum að horfast í augu við þessa fortíð“ Innlent Nafn piltsins sem lést í slysi á Miklubraut Innlent „Þetta er náttúrulega bara rotið og galið“ Innlent Birgir Örn óviss en Ísak Leon handviss Innlent Nemendur vilji ekki vera í skólanum á meðan rektor er við stjórnvölinn Innlent Orri oddviti Sjálfstæðismanna í Hafnarfirði Innlent María Ellen kjörin oddviti Viðreisnar í Kópavogi Innlent Jónas Már kjörinn oddviti Samfylkingarinnar í Kópavogi Innlent Bandaríkjamenn vilji að stríðinu verði lokið í júní Erlent Kosningavaktin 2026: Landsmenn kjósa sér sveitarstjórnir Innlent Fleiri fréttir „Við þurfum að horfast í augu við þessa fortíð“ Orri oddviti Sjálfstæðismanna í Hafnarfirði Birgir Örn óviss en Ísak Leon handviss Þór leiðir aftur á Seltjarnarnesi María Ellen kjörin oddviti Viðreisnar í Kópavogi Orri áfram oddviti Framsóknar í Kópavogi Jónas Már kjörinn oddviti Samfylkingarinnar í Kópavogi Þorvaldur og Halldór með Einari og Magneu í Framsókn Einn handtekinn fyrir þjófnað í Skeifunni „Þetta er náttúrulega bara rotið og galið“ Nafn piltsins sem lést í slysi á Miklubraut Hjólar í borgina: Hafi engan áhuga á atkvæðum hjólreiðafólks Sigmundur í skotlínunni vegna ummæla um Svíþjóð Berglind rétt marði Þórhall „Síminn stoppar ekki“ Bifrastarmálið: „Þetta er fyrst og fremst sorglegt“ Mótorhjól eru bönnuð í Grænlandi Vantrauststillagan stendur þrátt fyrir niðurstöðu siðanefndar Hlédís Maren fram fyrir Miðflokkinn Nemendur vilji ekki vera í skólanum á meðan rektor er við stjórnvölinn Spyr hvort troða eigi gömlu fólki inn á heimili landsmanna Þrír gerðir að heiðursfélögum Sleipnis á Selfossi Viðreisn býður fram undir eigin merkjum á Ísafirði „Það er ekkert hæft í þessu“ Flutningabílar fastir á Þröskuldum Mætti með eggvopn á skemmtistað Efaðist ekki um að orsökin var bilaður aðflugsgeisli Skriður kominn á tuttugu ára gömul áform um nýjan golfvöll á Álftanesi „Ástandið hefur aldrei verið jafn slæmt“ Fósturforeldrar og barnavernd upplifað algjört afskiptaleysi Sjá meira