Leigusamningar áfram í erlendri mynt 24. júlí 2010 07:00 Kaupleigusamningar voru aðallega gerðir um kaup einstaklinga á bílum en fjármögnunarleigusamningar um kaup fyrirtækja á tækjum. fréttablaðið/pjetur
Íslandsbanki og Lýsing hafa komist að þeirri niðurstöðu að dómur Hæstaréttar um ólögmæti gengistryggingu lána nái eingöngu yfir kaupleigusamninga en ekki aðra leigusamninga svo sem fjármögnunarleigusamninga. Íslandsbanki sendi tilkynningu til viðskiptavina sinna í síðustu viku varðandi málið og Lýsing birti frétt á vefsíðu sinni í gær. Samkvæmt upplýsingum frá Íslandsbanka er um að ræða á þriðja þúsund leigusamninga af þeirra hálfu en slíkir samningar eru aðallega gerðir við fyrirtæki og einstaklinga í atvinnurekstri. Í umfjöllun Fréttablaðsins um fjármögnun vinnuvéla í ágúst 2007 kemur fram að bændur hafi fremur nýtt sér kaupleigusamninga, vegna möguleika sem slíkir samningar hafi veitt í afskrift á tækjakosti. Þar er um leið haft eftir starfsmanni Glitnis banka að verktakar hafi fremur kosið fjármögnunarleigusamninga vegna möguleika til skattfrestunar sem sú leið hafi haft í för með sér. Arion banki veitti engin gengistryggð bílalán og hefur því ekki skoðað málið. Avant gerði nær eingöngu kaupleigusamninga við sína viðskiptavini og hefur því ekki skoðað þetta heldur. Ekki fengust upplýsingar frá Landsbankanum og SP-fjármögnun um málið. Í tilkynningu Íslandsbanka segir að efni fjármögnunarleigusamninga sé í veigamiklum atriðum frábrugðið kaupleigusamningum og að dómur Hæstaréttar hafi einungis náð til slíkra samninga, því verði áfram miðað við umsamda myntsamsetningu við útreikninga framtíðarleigureikninga á fjármögnunarleigusamingum. Túlkun fyrirtækjanna byggist á því að dómur Hæstaréttar hafi eingöngu náð til lánasamninga og ekki sé hægt að skilgreina fjármögnunarleigusamning sem lánasamning þar sem eignin sem leigð er skiptir ekki um hendur. magnusl@frettabladid.is
Mest lesið Alls leituðu tvö hundruð manns í sex sólarhringa Innlent Segir fólki á ósamþykktum peptíðum að hætta strax Innlent Eiginkonan hvarf til Rússlands skömmu eftir giftingu Innlent „Þetta er bara sanngirnismál“ Innlent Sigmar Ó. Maríusson er látinn Innlent Segjast hafa skotið á bandarískt herskip Erlent Hafa reist leikskóla á sex mánuðum fyrir helming kostnaðarins Innlent Stakk sofandi mann sem hann taldi hafa brotið á syni sínum Innlent Lenti á hvolfi í á: „Þetta er ekkert notalegt“ Innlent Kosningaspá Vísis: Berjast hart um þriðja fulltrúann Innlent Fleiri fréttir Gullgrafaraæði magnast upp í tengslum við sólmyrkvann Bein útsending: Ræða bakslag í jafnréttismálum Kosningaspá Vísis: Berjast hart um þriðja fulltrúann Einar Ólafsson, fyrsti forstjóri Cargolux, látinn Borgin víki sér ítrekað undan ábyrgð Segir fólki á ósamþykktum peptíðum að hætta strax Hafa reist leikskóla á sex mánuðum fyrir helming kostnaðarins Ók í gegnum glerhurð í Kaupangi „Getur verið erfitt fyrir okkur sums staðar“ Eiginkonan hvarf til Rússlands skömmu eftir giftingu Forsetinn á fund páfans „Þetta er bara sanngirnismál“ Alls leituðu tvö hundruð manns í sex sólarhringa Sigmar Ó. Maríusson er látinn Lenti á hvolfi í á: „Þetta er ekkert notalegt“ „Ég er ekki viss um að þau viti hvað við viljum“ „Skilningur opnar ekki höfnina“ Brúnþari geti nýst til að græða sár og byggja bein Vilja meiri stuðning í atvinnumálum og íþróttahús fyrir Þórsara Stakk sofandi mann sem hann taldi hafa brotið á syni sínum Sinueldur á Kjalarnesi „Þitt vandamál er að þú skilur ekki stéttarfélög“ Gervigreindin gæti haft áhrif á ESB-atkvæðagreiðsluna Brotthvarf bandarískra hermanna veiki ekki NATO í Evrópu Eftirlit lögreglu og utanríkisráðherra um breytingar á herafla í Þýskalandi Inga Dögg lést á Skorradalsvatni Lögðu hald á eggvopn og fíkniefni en handtóku engan Verkalýðsfélög, gervigreind og Landeyjahöfn í Sprengisandi Fjórir handteknir vegna fjögurra líkamsárása Lögregla með virkt eftirlit við afmæli Hell's Angels Sjá meira