Innlent

Iðnaðarráðherra vill stytta leigutíma Magma

Katrín Júlíusdóttir iðnaðarráðherra vill stytta leigutíma samnings Magma við Reykjanesbæ á jarðhitaréttindum. Hún telur óæskilegt að rifta samningnum. Þá vill Katrín tryggja forkaupsrétt ríkisins að bréfum í HS Orku. Ef verið sé að ofnýta auðlindir, þá geti ráðherra afturkallað virkjanaleyfið. Þetta kemur fram í frétt RÚV.

Formlegar viðræður hefjast um málið innan skamms. Kanadíska fyrirtækið Magma Energy hefur samkvæmt samningnum við Reykjanesbæ nýtingarrétt á jarðhita suður með sjó í 65 ár og getur framlengt hann um önnur 65 ár, ef vilji er fyrir hendi.

Katrín segir við RÚV vera að vinna að frumvarpi sem stytti heimildir sveitarfélaganna til að leigja frá sér auðlindir.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×