Umbótanefnd Samfylkingarinnar tekur til starfa 14. maí 2010 16:56 Steinunn Valdís Óskarsdóttir hefur lagt umdeilt stykjamál sitt í dóm nefndarinnar.
Umbótanefnd Samfylkingarinnar sem ákveðið var á flokksstjórnarfundi 17. apríl sl. að stofna til er nú fullskipuð. Hún hefur það verkefni að leiða umræður og skoðanaskipti um störf, stefnu, innri starfshætti og ábyrgð Samfylkingarinnar í aðdraganda bankahrunsins. Nefndinni er ætlað að skila niðurstöðu sinni 15. október 2010, ásamt tillögum um umbætur á flokksstarfi og skipulagi flokksins. Ásgeir Beinteinsson skólastjóri, Hólmfríður Sveinsdóttir stjórnsýslufræðingur, Jón Ólafsson heimspekingur og Kolbrún Benediktsdóttir lögfræðingur fara með verkstjórn verkefnisins. Flokksmenn hafa skipað tvo fulltrúa hvers kjördæmis í nefndina og hún er því skipuð samtals sextán einstaklingum. Fulltrúar kjördæmanna eru: Auður Styrkársdóttir, Hjálmar Sveinsson, Sigurbjörg Sigurgeirsdóttir og Stefán Benediktsson frá Reykjavík. Steini Þorvaldsson og Steinunn Dögg Steinsen úr Suðvesturkjördæmi. Auður Ingólfsdóttir og Sveinn Allan Morthens úr Norðvesturkjördæmi. Hannes Friðriksson og Sandra Gunnarsdóttir úr Suðurkjördæmi. Ólafía Þ. Stefánsdóttir og Þorsteinn Arason úr Norðausturkjördæmi. Helstu viðfangsefni umbótanefndarinnar samkvæmt tilkynningu frá flokknum eru að: Fjalla um niðurstöður skýrslu rannsóknarnefndar Alþingis og leggja mat á orð og verk Samfylkingarinnar í ljósi niðurstaðna skýrslunnar. Rýna í stefnu Samfylkingarinnar á þeim lykilsviðum sem dregin eru fram í skýrslu rannsóknarnefndarinnar sem orsakavaldar eða rætur hruns fjármálakerfisins. Greina starfshætti Samfylkingarinnar, ábyrgð hennar og aðkomu stofnana flokksins að lykilákvörðunum og lykilmálum i ljósi niðurstaðna rannsóknarnefndarinnar. Tímabilið sem starf nefndarinnar beinist að fyrst og fremst er frá maí 2007 til janúar 2009. Steinunn Valdís Óskarsdóttir, þingmaður Samfylkingarinnar, hefur áður sagt að hún muni bíða eftir niðurstöðu nefndarinnar vegna styrkja sem hún þáði árið 2006 og 2007.
Mest lesið Spurningin kom Guðlaugi Þór í opna skjöldu Innlent Þyrlan kölluð út vegna mótorhjólaslyss Innlent Hvað ef það verður skýjað þegar almyrkvinn verður? Innlent Einn í haldi vegna rannsóknar á mannsláti í Kópavogi Innlent Fjögurra tonna eldflaugabútur skall á tunglið á ógnarhraða Erlent Segir enga tryggingu fyrir annarri þjóðaratkvæðagreiðslu Innlent Skipverjar gangi örna sinna í vaska og lögmaðurinn fullur Innlent Barn í hoppukastala sem tókst á loft Innlent Samræði við þrettán ára stjúpsystur ekki nauðgun að mati héraðsdóms Innlent Gætu verið fluttir á brott um borð í Bandero Innlent Fleiri fréttir Tíu áfram í haldi grunaðir í tveimur stórfelldum málum Sjá segir sænska krónu tengda evru, sem hún er ekki Einn í haldi vegna rannsóknar á mannsláti í Kópavogi Gæti tekið nokkrar vikur að vísa Bandero-liðum úr landi „Myndi hafa þveröfug áhrif ef seðlabankinn myndi hækka stýrivexti“ Þyrlan kölluð út vegna mótorhjólaslyss Stefnir í stærstu Gleðigöngu sögunnar Banderofólki brottvísað og hinsegin dagar hafnir Gætu verið fluttir á brott um borð í Bandero Segir enga tryggingu fyrir annarri þjóðaratkvæðagreiðslu Hvað ef það verður skýjað þegar almyrkvinn verður? Barn í hoppukastala sem tókst á loft Spurningin kom Guðlaugi Þór í opna skjöldu Alvarlegt að ógna fólki með því sem það heldur að sé vopn Lögreglan mun fylgja skipverjunum úr landi Samræði við þrettán ára stjúpsystur ekki nauðgun að mati héraðsdóms Reyndust báðir vopnaðir, annar hamri og hinn öxi Segir lögreglu skrumskæla gamansöm ummæli Landsmönnum fjölgaði um 1.450 á öðrum ársfjórðungi Ítrekað hjólað á móti umferð Marktækur munur á fylgi Samfylkingar og Sjálfstæðisflokks Skipverjar gangi örna sinna í vaska og lögmaðurinn fullur Meirihluti telur vexti lækka en undanþágu í sjávarútvegi ólíklega Ný ESB-könnun, skipverjar Bandero og óþarfa hætta á Hverfisgötu Skipverjarnir mega allir fara frá borði Næturborun í sjó lokið og verktakar þakka íbúum þolinmæðina Minnst einn skipverji Bandero má fara frá borði „Við látum ekki fæla okkur aftur inn í skápinn“ „Við erum svolítið strand“ Útsýnispallurinn talinn öruggur þrátt fyrir sprungur Sjá meira