Bændur nýti sitt eigið landsvæði 9. ágúst 2010 03:00 Formaður Landssamtaka sauðfjárbænda segir að bændur bæti ekki tjón bílstjóra, þótt sauðfé hlaupi fyrir bíl á þjóðvegum úti. Hins vegar þurfi bílstjórar ekki að bæta fyrir dýrið. Mynd/úr safni
Landgræðslustjóri segir skaðann af lausagöngu sauðfjár á gróður landsins hafa snarminnkað síðustu áratugi. Hross séu höfð innan girðingar að mestu leyti. „Ég trúi því að á komandi árum muni bændur fyrst og fremst nýta eigið land. Þá mun öllum gróðri farnast vel,“ segir Sveinn Runólfsson landgræðslustjóri. „En því miður er of víða á landinu ágangur af sauðfé á annarra lönd og þeir sem verða fyrir því telja að bændur séu að fremja eignaupptöku á þeirra landi,“ segir Sveinn. Framkvæmdastjóri Landssamtaka sauðfjárbænda segir hins vegar að almennt séu þessir hlutir í lagi. „Almennt er það svo, þótt það séu tilvik þar sem girðingar eru ekki í lagi,“ segir Sigurður Eyþórsson, framkvæmdastjóri Ls. Spurður hvort bændur sjálfir telji sig gera nóg til að koma í veg fyrir ágang sauðfjár á annarra manna lönd, segir hann bændur fara eftir þeim reglum sem gilda í hverju sveitarfélagi. Þorvaldur Gylfason prófessor skrifaði í blaðið á fimmtudag um „Þjóðlegan uppblástur“. Þorvaldur vitnaði þar í fyrrverandi landgræðslustjóra, Runólf Sveinsson, föður núverandi landgræðslustjóra. Runólfur sagði árið 1947 að til að reka sauðfjárrækt sem ræktunarbúskap en ekki sem rányrkju og hirðingjabúskap þurfi að girða sauðféð af og hafa það á ræktuðu landi. Sveinn landgræðslustjóri segir hlæjandi að rányrkjan sé mun minni en áður var. Ástandið hafi gjörbreyst síðan 1947 og nú séu stærstu verkefni Landsgræðslunnar í samvinnu við bændur. Þetta séu erfið mál og viðkvæm, en lagist eftir því sem sauðfé fækkar. Sigurður Eyþórsson kannast ekki við ofbeit nú til dags. Í fyrrnefndri grein Þorvaldar gagnrýndi hann VG – sem fer með bæði umhverfis- og landbúnaðarráðuneyti – fyrir að hafa ekkert gert í þessum málum, en kalla sig umhverfisflokk. Enginn umhverfisráðherra hafi þorað að stugga við sauðkindinni frá stofnun ráðuneytisins. Ef til vill óttist flokkarnir að missa atkvæði til sveita. Umhverfisráðherra, Svandís Svavarsdóttir, vill ekki svara fyrirspurnum um þetta, en býðst til að gera það eftir helgi. „Þorvaldur er að egna mig til dáða,“ segir hún. klemens@frettabladid.is sveinn runólfssonsigurður Eyþórssonsvandís svavarsdóttir
Mest lesið Vaktin: Íbúum verulega brugðið og óttast framtíðina í sveitinni Innlent „Þeir skulu ekki halda það að þeir geti drepið mig“ Innlent Slapp vel þegar bíll hennar valt yfir 200 metra niður Bolafjall Innlent Gríðarlegur fjöldi minka slapp úr búrum sínum Innlent Eldur í Stykkishólmi Innlent Horfðu á bílinn velta hring eftir hring niður fjallið Innlent Líkir Tryggingastofnun við handrukkara Innlent „Mér finnst þetta mjög vel gert hjá henni“ Innlent „Við ætlum að fokking lúskra á þeim“ Erlent Talið að fleiri þúsund minkar gangi lausir Innlent Fleiri fréttir Gripinn á nánast tvöföldum hámarkshraða Skothljóð og minkafár í Mosfellsdal í beinni Eldur í Stykkishólmi Horfðu á bílinn velta hring eftir hring niður fjallið Hvað er í boði um Verslunarmannahelgina? „Þeir skulu ekki halda það að þeir geti drepið mig“ Slapp vel þegar bíll hennar valt yfir 200 metra niður Bolafjall Hafdís Huld í bæjarstjórastólinn Lýsa eftir landnámshænu við KFC í Hafnarfirði Allir á hlaupum að reyna fanga minka Ráðlagt að hafa garða snyrtilega og stéttir sópaðar þegar fólk er í burtu Veðurspáin að bjarga miðasölu Þjóðhátíðar fyrir horn Segist hafa skipt um skoðun varðandi aðildarviðræðurnar Líkir Tryggingastofnun við handrukkara Níutíu prósent minkanna hafi ekki næstu daga af „Það er bara ekkert sniðugt við þetta“ Minkafár í Mosfellsdal og Þjóðhátíð undirbúin Vaktin: Íbúum verulega brugðið og óttast framtíðina í sveitinni Talið að fleiri þúsund minkar gangi lausir Náttúran verði sett í fyrsta sæti en ekki ræktandinn Bæjarstjórinn hvetur íbúa til að halda dýrum inni í bili Gríðarlegur fjöldi minka slapp úr búrum sínum „Mér finnst þetta mjög vel gert hjá henni“ Drjúgdjúpt að kafa eftir gullkistunni í Kattarauga Viðbrögð Mancel við dómsuppkvaðningu komi ekki á óvart Umfangsmiklar götulokanir í kringum almyrkva Mjólkurhvít mengun í Sauðá Skelfur við Landmannalaugar Vonbrigði, götulokanir í almyrkva og handbolta-hástökkvari Fara fram á varðhald á grundvelli almannahagsmuna Sjá meira