Ríkisendurskoðun í saumana á fjárhag Byggðastofnunar 9. ágúst 2010 18:30
Ríkisendurskoðun hefur ákveðið að fara sérstaklega yfir fjárhag Byggðastofnunar í kjölfar frétta um útlán sem tryggð eru með veði í úthafsrækjukvóta. Þá hyggst Katrín Júlíusdóttir, iðnaðarráðherra, óska eftir upplýsingum um lánveitingar til fyrirtækja í rækjuvinnslu hjá forstjóra stofnunarinnar. Eins og fréttastofa greindi frá í gærkvöldi eru einu tryggingar Byggðastofnunar fyrir lánum, sem samtals nema 1,3 milljörðum króna, sem stofnunin veitti til nokkurra fyrirtækja á sviði rækjuútgerðar og vinnslu í verðlausum rækjukvóta einum og sér, þrátt fyrir að slíkt stríði gegn samningsveðlögunum. Útlit er fyrir að afskrifa þurfi stóran hluta lánveitinganna. Í kjölfar þessara umfjöllunar fréttastofunnar hefur Sveinn Arason, ríkisendurskoðandi, ákveðið að fara sérstaklega yfir efnahag Byggðastofnunar, en Sveinn staðfesti þetta í samtali við fréttastofu í dag. Samkvæmt heimildum fréttastofu hefur Byggðastofnun gefið þær skýringar á þessum útlánum til fyrirtækja í rækjuútgerð að um síðustu áramót hafi um helmingur af þessum lánum þegar verið afskrifaður. Katrín Júlíusdóttir, iðnaðarráðherra, er í sumarfríi á landsbyggðinni en sagði í samtali við fréttastofu að hún hefði ákveðið að óska sérstaklega eftir upplýsingum um þessar lánveitingar hjá forstjóra Byggðastofnunar. Fjárhagur Byggðastofnunar gæti verið betri, en á síðasta rekstrarári var eiginfjárhlutfall stofnunarinnar 5 prósent, en hlutfallið má lögum samkvæmt ekki fara undir 8 prósent. Að beiðni Byggðastofnunar vann Ríkisendurskoðun úttekt og greiningu á efnahagsreikningi stofnunarinnar á síðasta ári og sá Ríkisendurskoðun ekki ástæðu til að gera athugasemdir. Í framhaldinu ákvað Alþingi að auka eigið fé Byggðastofnunar um 2,6 milljarða króna með fjáraukalögum 2009. Jafnframt samþykkti Alþingi allt að eins milljarðs króna framlag til viðbótar til að bæta eigið fé stofnunarinnar á fjárlögum 2010. Þetta verður því í annað sinn á skömmum tíma sem Ríkisendurskoðun fer í úttekt og greiningu á efnahag Byggðastofnunar.
Tengdar fréttir Upplýsti Ríkisendurskoðun um veð í rækju Sveinn Arason, ríkisendurskoðandi, segir að Byggðastofnun hafi upplýst Ríkisendurskoðun um að einu tryggingar fyrir lánum Byggðastofnunar til fyrirtækja á sviði rækjuvinnslu sé verðlaus rækjukvóti. Sveinn segir ekkert hafa komið fram um eitthvað óeðlilegt í bókhaldi Byggðastofnunar, en fjárhagur stofnunarinnar er bágborinn. 9. ágúst 2010 12:14 Mest lesið „Við þurfum að horfast í augu við þessa fortíð“ Innlent Nafn piltsins sem lést í slysi á Miklubraut Innlent „Þetta er náttúrulega bara rotið og galið“ Innlent Birgir Örn óviss en Ísak Leon handviss Innlent Nemendur vilji ekki vera í skólanum á meðan rektor er við stjórnvölinn Innlent Orri oddviti Sjálfstæðismanna í Hafnarfirði Innlent Slys á Miklubraut: Einn fluttur á sjúkrahús og einn bíll tjónaður Innlent Valgarð Már er látinn Innlent „Sorglegra en orð fá lýst“ Innlent Kosningavaktin 2026: Landsmenn kjósa sér sveitarstjórnir Innlent Fleiri fréttir „Við þurfum að horfast í augu við þessa fortíð“ Orri oddviti Sjálfstæðismanna í Hafnarfirði Birgir Örn óviss en Ísak Leon handviss Þór leiðir aftur á Seltjarnarnesi María Ellen kjörin oddviti Viðreisnar í Kópavogi Orri áfram oddviti Framsóknar í Kópavogi Jónas Már kjörinn oddviti Samfylkingarinnar í Kópavogi Þorvaldur og Halldór með Einari og Magneu í Framsókn Einn handtekinn fyrir þjófnað í Skeifunni „Þetta er náttúrulega bara rotið og galið“ Nafn piltsins sem lést í slysi á Miklubraut Hjólar í borgina: Hafi engan áhuga á atkvæðum hjólreiðafólks Sigmundur í skotlínunni vegna ummæla um Svíþjóð Berglind rétt marði Þórhall „Síminn stoppar ekki“ Bifrastarmálið: „Þetta er fyrst og fremst sorglegt“ Mótorhjól eru bönnuð í Grænlandi Vantrauststillagan stendur þrátt fyrir niðurstöðu siðanefndar Hlédís Maren fram fyrir Miðflokkinn Nemendur vilji ekki vera í skólanum á meðan rektor er við stjórnvölinn Spyr hvort troða eigi gömlu fólki inn á heimili landsmanna Þrír gerðir að heiðursfélögum Sleipnis á Selfossi Viðreisn býður fram undir eigin merkjum á Ísafirði „Það er ekkert hæft í þessu“ Flutningabílar fastir á Þröskuldum Mætti með eggvopn á skemmtistað Efaðist ekki um að orsökin var bilaður aðflugsgeisli Skriður kominn á tuttugu ára gömul áform um nýjan golfvöll á Álftanesi „Ástandið hefur aldrei verið jafn slæmt“ Fósturforeldrar og barnavernd upplifað algjört afskiptaleysi Sjá meira
Upplýsti Ríkisendurskoðun um veð í rækju Sveinn Arason, ríkisendurskoðandi, segir að Byggðastofnun hafi upplýst Ríkisendurskoðun um að einu tryggingar fyrir lánum Byggðastofnunar til fyrirtækja á sviði rækjuvinnslu sé verðlaus rækjukvóti. Sveinn segir ekkert hafa komið fram um eitthvað óeðlilegt í bókhaldi Byggðastofnunar, en fjárhagur stofnunarinnar er bágborinn. 9. ágúst 2010 12:14