Lífið

Dóri spilar í klúbbi Morgans

Halldór Bragason spilar í blúsklúbbnum Ground Zero í Clarksdale, Mississippi, í október næstkomandi. Klúbburinn er að hluta til í eigu Hollywoodleikarans Morgans Freeman.
Halldór Bragason spilar í blúsklúbbnum Ground Zero í Clarksdale, Mississippi, í október næstkomandi. Klúbburinn er að hluta til í eigu Hollywoodleikarans Morgans Freeman.

Blúsaranum Halldóri Bragasyni hefur verið boðið að spila í Ground Zero-blúsklúbbnum fræga í Clarksdale í Mississippi sem Hollywood-leikarinn Morgan Freeman er meðeigandi að.

Halldór heimsótti klúbbinn á síðasta ári þegar hann fór á tónleika með Super Chikan, sem spilar einmitt á Blúshátíð í Reykjavík sem hefst á laugardaginn.

„Þetta verður voða gaman. Þarna í Clarksdale eru upphaflegu krossgöturnar. Þetta er fæðingarstaður blúsins þar sem Robert Johnson og Muddy Waters voru,“ segir Halldór, sem býst við því að hitta Morgan Freeman þegar hann spilar í Ground Zero.

Stutt er síðan fjallað var um klúbbinn í sjónvarpsþætti Stephens Fry þar sem hann ferðaðist um Bandaríkin. Áður hefur verið fjallað um hann í fréttaskýringaþættinum 60 mínútum og á sjónvarpsstöðinni National Geographic. Blústónleikar eru haldnir á staðnum um hverja helgi og einn af fastagestum þar er Super Chikan.

„Við sáum Super Chikan spila á laugardeginum og hrifumst af honum og ákváðum að fá hann til að koma til Íslands,“ segir Halldór.

Í tengslum við tónleika hans í Ground Zero hyggur Blúsfélag Reykjavíkur á hópferð á hina árlegu blúshátíð í borginni Helena í Arkansas og á hátíð hins aldna Pinetop Perkins, sem spilaði á Blúshátíð í Reykjavík í fyrra. Að sjálfsögðu verður Ground Zero heimsóttur auk borgarinnar Memphis og að sögn Halldórs hafa þegar tíu manns skráð sig. - fb






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.