Dóri spilar í klúbbi Morgans 26. mars 2010 05:00 Halldór Bragason spilar í blúsklúbbnum Ground Zero í Clarksdale, Mississippi, í október næstkomandi. Klúbburinn er að hluta til í eigu Hollywoodleikarans Morgans Freeman.
Blúsaranum Halldóri Bragasyni hefur verið boðið að spila í Ground Zero-blúsklúbbnum fræga í Clarksdale í Mississippi sem Hollywood-leikarinn Morgan Freeman er meðeigandi að. Halldór heimsótti klúbbinn á síðasta ári þegar hann fór á tónleika með Super Chikan, sem spilar einmitt á Blúshátíð í Reykjavík sem hefst á laugardaginn. „Þetta verður voða gaman. Þarna í Clarksdale eru upphaflegu krossgöturnar. Þetta er fæðingarstaður blúsins þar sem Robert Johnson og Muddy Waters voru,“ segir Halldór, sem býst við því að hitta Morgan Freeman þegar hann spilar í Ground Zero. Stutt er síðan fjallað var um klúbbinn í sjónvarpsþætti Stephens Fry þar sem hann ferðaðist um Bandaríkin. Áður hefur verið fjallað um hann í fréttaskýringaþættinum 60 mínútum og á sjónvarpsstöðinni National Geographic. Blústónleikar eru haldnir á staðnum um hverja helgi og einn af fastagestum þar er Super Chikan. „Við sáum Super Chikan spila á laugardeginum og hrifumst af honum og ákváðum að fá hann til að koma til Íslands,“ segir Halldór. Í tengslum við tónleika hans í Ground Zero hyggur Blúsfélag Reykjavíkur á hópferð á hina árlegu blúshátíð í borginni Helena í Arkansas og á hátíð hins aldna Pinetop Perkins, sem spilaði á Blúshátíð í Reykjavík í fyrra. Að sjálfsögðu verður Ground Zero heimsóttur auk borgarinnar Memphis og að sögn Halldórs hafa þegar tíu manns skráð sig. - fb
Mest lesið Ein pilla dró Panettiere til dauða Lífið Ed Sheeran sparkar Macklemore Lífið „Ég ætla að sofa heila eilífð núna“ Tónlist Stjörnulífið: Í fyrsta skipti í bikiníi í útlöndum Lífið Heldur sig til hlés og lifir skírlífi Lífið Vala Matt kom heljarinnar búslóð fyrir í sextíu fermetra íbúð Lífið 50+: Svefnherbergisskilnaður Áskorun Hátt í þúsund manns mættu í matar- og vínveislu Innnes Lífið samstarf Tekur árásum á samfélagsmiðlum fagnandi Lífið Hið alræmda „Epstein drap sig ekki“-samsæri Lífið Fleiri fréttir Hvað veistu um… Titanic? Ed Sheeran sparkar Macklemore Hið alræmda „Epstein drap sig ekki“-samsæri Ein pilla dró Panettiere til dauða Heldur sig til hlés og lifir skírlífi Vala Matt kom heljarinnar búslóð fyrir í sextíu fermetra íbúð Stjörnulífið: Í fyrsta skipti í bikiníi í útlöndum „Ég byrjaði að lesa kaflann og fór bara að gráta“ Skúli Jón og Jennifer gengin í hnapphelduna Tekur árásum á samfélagsmiðlum fagnandi Krakkatía vikunnar: Tollering, Sims og Einar Áskell Lady Gaga orðin mamma Herbert kveikti í myndverinu í fyrsta þætti Presturinn sem hataði kristinfræði Fréttatía vikunnar: Þagnargreiðsla, tannbursti og hálfvitar Sökuð um að siga fylgjendum á móður fyrrverandi Iceguys í erlendum raunveruleikaþætti TikTok-stjörnur fjölga mannkyninu Pétur og Birgitta nýtt par Sigrún Ósk mætt á RÚV Saga um par með Downs og dverga reyndist tröllasaga Hvað veistu um... gönguleiðir? „Ég þurfti að segja heiminum að þú værir með krabbamein“ Persónuleg Vala Matt opnar sig um einkalífið Fallegar kveðjur og ósagðar sögur af meistara grínsins Faldi diktafóna, tók myndir og át til að fanga stemminguna Uppeldisfræðingurinn reyndist vel sósuð fótboltabulla Öldrunarlæknir og verkfræðingur selja miðbæjarperlu Ungfrú Austurríki látin aðeins 22 ára Leiðir skilja hjá leikhúspari Sjá meira