Árni Johnsen: Þetta er ekkert flókið 1. ágúst 2010 11:15 Árni Johnsen fær liðsauka í brekkusöngnum í kvöld. „
Nei, ég er aldrei spenntur maður, það er allt svo erfitt. Ég æfi ekki, ég keppi bara," segir Árni Johnsen kátur í samtali við fréttastofu nú fyrir stundu. Eins og venjan er á Þjóðhátíð mun Árni stjórna brekkusöngnum í kvöld. Örlítil breyting verður á fyrirkomulaginu þetta árið því Árni mun ekki vera einn með sönginn. Samkvæmt Eyjafréttum munu þeir Jarl Sigurgeirsson og Sæþór Vídó aðstoða hannn, en þeir spila báðir með hljómsveitinni Tríkoti. Árni var hress og í góðu skapi þegar að fréttastofa ræddi við hann fyrir stundu. Fréttamaður sagðist hafa frétt af því að hann yrði ekki einn í kvöld að stjórna brekkusöngnum. Árni svaraði honum um hæl: „Nei, ég held að við verðum eitthvað um tuttugu þúsund." Árni segir að gott sé að fá liðsauka enda sé brekkusöngurinn einn stærsti viðburðurinn á þjóðhátíð. „Það fjölgar alltaf og fjölgar og þá getur verið skemmtilegt að styrkja hljóðið í þessu," segir Árni sem vill ekki segja frekar frá útsetningunni. „Þetta kemur allt í ljós, það þarf ekki að kvarta undan „sound-i" þegar við erum með tuttugu þúsund manna kór. Það er bara gaman að styrkja undirspilið aðeins." Árni segist ætla að spila um 60 slagara í kvöld og einhverjir af þeim hafa ekki verið spilaðir áður. Hverjir eru það? „Ég segi ekki frá því, þetta vaknar bara í brekkunni. Þetta er ekkert flókið sko, við syngjum ekki eftir stafrófsröð frekar en við viljum deyja eftir stafrófsröð," segir Árni sprækur að lokum. Brekkusöngurinn byrjar á slaginu klukkan 23 í kvöld og verður útvarpað í beinni útsendingu á RÁS 2.
Mest lesið Maður stunginn í miðbæ Reykjavíkur Innlent Flugfólkið þurfti stöðugt að varast trúarlögregluna Innlent „Við þurfum að horfast í augu við þessa fortíð“ Innlent Nafn piltsins sem lést í slysi á Miklubraut Innlent „Þetta er náttúrulega bara rotið og galið“ Innlent Nemendur vilji ekki vera í skólanum á meðan rektor er við stjórnvölinn Innlent Birgir Örn óviss en Ísak Leon handviss Innlent Kosningavaktin 2026: Landsmenn kjósa sér sveitarstjórnir Innlent Epstein-skjölin, verðbólgan og bréf leikskólastjóra Innlent Orri oddviti Sjálfstæðismanna í Hafnarfirði Innlent Fleiri fréttir Leita enn að meintum geranda í stungumáli Epstein-skjölin, verðbólgan og bréf leikskólastjóra Flugfólkið þurfti stöðugt að varast trúarlögregluna Maður stunginn í miðbæ Reykjavíkur „Við þurfum að horfast í augu við þessa fortíð“ Orri oddviti Sjálfstæðismanna í Hafnarfirði Birgir Örn óviss en Ísak Leon handviss Þór leiðir aftur á Seltjarnarnesi María Ellen kjörin oddviti Viðreisnar í Kópavogi Orri áfram oddviti Framsóknar í Kópavogi Jónas Már kjörinn oddviti Samfylkingarinnar í Kópavogi Þorvaldur og Halldór með Einari og Magneu í Framsókn Einn handtekinn fyrir þjófnað í Skeifunni „Þetta er náttúrulega bara rotið og galið“ Nafn piltsins sem lést í slysi á Miklubraut Hjólar í borgina: Hafi engan áhuga á atkvæðum hjólreiðafólks Sigmundur í skotlínunni vegna ummæla um Svíþjóð Berglind rétt marði Þórhall „Síminn stoppar ekki“ Bifrastarmálið: „Þetta er fyrst og fremst sorglegt“ Mótorhjól eru bönnuð í Grænlandi Vantrauststillagan stendur þrátt fyrir niðurstöðu siðanefndar Hlédís Maren fram fyrir Miðflokkinn Nemendur vilji ekki vera í skólanum á meðan rektor er við stjórnvölinn Spyr hvort troða eigi gömlu fólki inn á heimili landsmanna Þrír gerðir að heiðursfélögum Sleipnis á Selfossi Viðreisn býður fram undir eigin merkjum á Ísafirði „Það er ekkert hæft í þessu“ Flutningabílar fastir á Þröskuldum Mætti með eggvopn á skemmtistað Sjá meira