Innlent

Søren Langvad handhafi Verðlauna Jóns Sigurðssonar

Søren Langvad sést hér með Ástu Ragnheiði Jóhannesdóttur, forseta Alþingis.
Søren Langvad sést hér með Ástu Ragnheiði Jóhannesdóttur, forseta Alþingis.
Hátíð Jóns Sigurðssonar var haldin í Jónshúsi í Kaupmannhöfn í dag, sumardaginn fyrsta. Markmiðið með hátíðinni er að heiðra minningu Jóns Sigurðssonar og halda á loft verkum hans og hugsjónum. Stjórn húss Jóns Sigurðssonar hefur umsjón með hátíðinni með fulltingi forseta Alþingis og forsætisnefndar.

Ásta R. Jóhannesdóttir, forseti Alþingis, hélt hátíðarræðu í tilefni dagsins. Í ræðu sinni fjallaði hún meðal annars um eldsumbrotin í Eyjafjallajökli, skýrslu rannsóknarnefndar Alþingis og samband fullveldis og Evrópusambandsaðildar. Þá afhenti forseti Alþingis Verðlaun Jóns Sigurðssonar. Í ár hlaut Søren Langvad byggingarverkfræðingur, starfandi stjórnarformaður Pihl og Søn og einn stofnenda og fyrrverandi stjórnarformaður íslenska verktakafyrirtækisins Ístaks verðlaunin.

Í tilkynningu frá Alþingi segir að Søren hafi stutt dyggilega við útbreiðslu íslenskrar menningar á danskri grund og unnið óeigingjarnt starf í þágu Íslendinga í Kaupmannahöfn, meðal annars sem formaður Dansk-islandsk samfund. Søren hafi verið ötull talsmaður íslenskra hagsmuna og hafi með ævistarfi sínu eflt vináttu milli Íslands og Danmerkur.

Alþingi veitir Verðlaun Jóns Sigurðssonar forseta í minningu starfa hans í þágu Íslands og Íslendinga. Þau hlýtur hverju sinni einstaklingur sem hefur unnið verk er tengjast hugsjónum og störfum Jóns Sigurðssonar. Þessi verk geta verið á sviði fræðistarfa, viðskipta eða mennta- og menningarmála.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×