„Hátíðisdagur þegar Ísland stendur þá aftur algjörlega á eigin fótum“ Þorbjörn Þórðarson skrifar 15. ágúst 2010 18:31
Fjármálaráðherra segir að vinnu vegna þriðju endurskoðunar efnahagsáætlunar fyrir Ísland sé lokið og er vongóður um að áætlunin verði staðfest af stjórn Alþjóðagjaldeyrissjóðsins í næsta mánuði. Jóhanna Sigurðardóttir, forsætisráðherra, sagðist í vikunni vera vongóð um að stjórn Alþjóðagjaldeyrissjóðsins myndi staðfesta þriðju efnahagsáætlun fyrir Ísland. Erum við að sjá fram á að það verði raunin? „Vinnunni er í grófum dráttum lokið og samkvæmt þeirra tímaplani þá ætti fyrirtaka að verða í fyrri hluta september og þangað til annað kemur í ljós bindum við einfaldlega vonir um að svo verði," segir Steingrímur J. Sigfússon, fjármálaráðherra. Eftir aðra endurskoðun sjóðsins í apríl var tilkynnt um að Ísland gæti fengið allt 160 milljónir dollara til viðbótar að láni frá sjóðnum, en það er jafnvirði tæplega 20 milljarða króna. Mark Flanagan, yfirmaður sendinefndar Alþjóðagjaldeyrissjóðsins á Íslandi, var hér á landi dagana 19.-22. júlí síðastliðinn og gaf út tilkynningu í kjölfarið um að áætlun sjóðsins hefði skilað árangri. Samdrátturinn hefði verið minni en óttast var um, verðbólga væri að hjaðna og krónan hefði náð stöðugleika. Hvenær losnum við við Alþjóðagjaldeyrissjóðinn? „Ef allt fer vel verður samstarfinu við sjóðinn lokið um mitt næsta ár og það verður hátíðisdagur þegar Ísland stendur þá aftur algjörlega á eigin fótum og þarf ekki á utanaðkomandi aðstoð að halda. Það ætti að geta orðið upp úr miðju næsta ári ef allt gengur vel," segir Steingrímur.
Mest lesið Nýjar reglur í lauginni og Björn rekinn á dyr Innlent Fundu blóðuga exi og kaðal eftir að kærastinn var handtekinn Innlent Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Innlent „Nú er þessi sleggja að koma fram“ Innlent Vilja öll greiða atkvæði um að kljúfa sig frá Bretlandi Erlent „Síðan er ég bara með hreindýrskálf að lykta af rassinum á mér“ Innlent Samkvæminu slúttað vegna brots á lögum Innlent Fékk nóg og er hættur á Facebook Innlent „Ætlunin er ekki að aðlaga þá aftur að samfélaginu“ Innlent Forstjórar gervigreindarfyrirtækja segja hættu á ferðum og hægja þurfi á þróun Erlent Fleiri fréttir „Hverjir tala við mömmu mína?“ Bókun 35 útskýrð á mannamáli Brotist inn í fyrirtæki í miðborginni Slökkvilið í Hafnarfjörð „Síðan er ég bara með hreindýrskálf að lykta af rassinum á mér“ Tvær þyrlur út á ystu nöf lögsögunnar Sökk í þriðja sinn í höfninni „Nú er þessi sleggja að koma fram“ Nýjar reglur í lauginni og Björn rekinn á dyr Forsætisráðherra um gjaldskrárhækkanir og ESB-umsókn „Ætlunin er ekki að aðlaga þá aftur að samfélaginu“ Kristrún ræðir málin á Sprengisandi Samkvæminu slúttað vegna brots á lögum Fundu blóðuga exi og kaðal eftir að kærastinn var handtekinn Óttast að fjármagn til námsgagna rati ekki rétta leið Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Óttast að umræðan muni dragast fram á sumar Fékk nóg og er hættur á Facebook Guðmundur Ari í varaformanninn Flugvirkjar hafi þegar fengið hækkanir „Þetta er fullkomið áfall“ Trúir á lausn þrátt fyrir vantrauststillögu Formaður SÁÁ bjartsýnn og Icelandair svarar fyrir sig Þrír kærðir fyrir líkamsárásir „Ég hef nú ekkert verið að gráta yfir þessu“ Lét lífið á Keflavíkurflugvelli Sektaður fyrir að skila ekki yfirliti um heimagistingu Enn þykknar upp hjá SÁÁ Ljósagatnamótin eigi að duga næstu tuttugu ár Allir stjórnmálaflokkar, Áfram Ísland og Sjá til skoðunar Sjá meira