Ráðhúsið í alveg nýju ljósi 11. febrúar 2010 05:00 Bill Fitzgibbons við „öndvegissúlurnar“ á Ráðhúsinu.
Safnanótt er haldin annað kvöld með iðandi listviðburðum úti um alla borg. Eftir opnunaratriðið, Ástargöngu um Tjörnina, sem hefst á Austurvelli kl. 18, verður ljósskúlptur Texasbúans Bills Fitzgibbons frá San Antonio við hljóðmynd Sverris Guðjónssonar settur í gang. Ljósi verður varpað á þær hliðar Ráðhússins sem snúa út að Tjörn. Bill segir að hægt verði að njóta verksins hvar sem er við Tjörnina. „Ég er mjög spenntur fyrir þessari staðsetningu því mér finnst hún passa svo vel við söguna um upphaf Reykjavíkur, Ingólf Arnarson og öndvegissúlurnar,“ segir hann. „Samlíkingin við söguna eru þessar stóru súlur sem rísa úr tjörninni. Verkið er því óður til upphafs borgarinnar og virðingarvottur við söguna.“ Bill hefur verið að setja verkið upp mestalla vikuna. „Tveir aðstoðarmenn hafa verið í stígvélum í Tjörninni að reyna að detta ekki,“ segir hann og hlær. „Við erum að verða búnir að rigga þessu upp. Þetta verður mikið sjónarspil. Þegar búið er að slökkva er verkið ekki lengur til. Mér finnst sá þáttur ljósskúlptúra áhugaverður. Ég kalla þetta inngrip í byggingarlistina. Verkin hafa ummyndandi kraft því þegar LED-ljósakerfi er sett upp á mikilvægar byggingar sjá borgararnir mannvirkin í alveg nýju ljósi. Fólk gleymir því aldrei. Þetta er mjög áhrifaríkt.“ Þegar verkið verður flutt í fyrsta skipti koma Sverrir Guðjónsson og Kammerkór Suðurlands ásamt Lúðrasveitinni Svani fram. Eftir það verður flutt upptaka af tónlistinni og verkið látið ganga til miðnættis. Með Fréttablaðinu á morgun fylgir sérrit um dagskrá Safnanætur.- drg
Mest lesið Reynir og Sólveig giftu sig í rauðu Lífið Á götunni ellefu ára og segir kerfið hafa gefist upp þegar hún var þrettán Lífið Laufey Lín sló í gegn á Coachella Tónlist Sigurður Sævar og Guðbjörg í sundur Lífið Britney farin í meðferð Lífið Stjörnulífið: Helen og Ruben ástfangin á Ítalíu Lífið Mesta áskorunin að greinast með hryggskekkju Lífið „Að fá þessa greiningu er ekki endapunktur“ Lífið Söngvari Massive Attack handtekinn á mótmælum Lífið Ekki er allt sem sýnist í Dimmu Tónlist Fleiri fréttir Mesta áskorunin að greinast með hryggskekkju Sigurður Sævar og Guðbjörg í sundur Britney farin í meðferð Reynir og Sólveig giftu sig í rauðu Á götunni ellefu ára og segir kerfið hafa gefist upp þegar hún var þrettán Söngvari Massive Attack handtekinn á mótmælum Stjörnulífið: Helen og Ruben ástfangin á Ítalíu Fortíðarþrá einkenndi endurkomuna á stóra sviðið Eilíf glötun bíður ekki endilega bóka í ruslagámum „Að fá þessa greiningu er ekki endapunktur“ Neyðarlegast að handleggsbrjóta vinkonu á sviði Krakkatía vikunnar: Skoffín, geitur og jarðarber Allir og amma þeirra í bókaklúbb Brúðkaupsdagurinn skilaði rúmum þremur milljónum Tónlist sem tekur á skömm og ótta með nokkrum blótsyrðum Steig fram eftir að sex ára dóttir hennar varð fyrir rasisma Mildari og þolinmóðari við sjálfa sig eftir greininguna Fréttatía vikunnar: Bó, vatn og vopnahlé Leitaði upprunans og fékk óvænta frænku í heimsókn Páll Edwald og Selma Eir trúlofuð „Er ég að klikka strax í 50?“ „Maður þarf að gera alla hluti upp“ Umdeildi brautryðjandinn Afrika Bambaataa allur Lærði að lifa lífinu upp á nýtt eftir alvarleg veikindi Sjarmatröllið sem setti popptónlist í öndvegi Halla gerir undantekningu vegna andlátsins Það er komið gó hjá Bó Svala minnist pabba síns Tekur við af dóttur kærastans Lifir með sjúkdóminum en lætur ekkert stöðva sig Sjá meira