Poppdraumur frá Baltimore 11. febrúar 2010 06:00 Victoria og Alex eru ekki par!
Ein af þeim plötum sem tónlistarmiðlar hafa hlaðið lofi í upphafi nýs árs er þriðja plata Baltimore-dúósins Beach House, Teen Dream. Trausti Júlíusson skoðaði þessa merku sveit. Það er óhætt að segja að tónlistarárið 2010 fari vel af stað. Ein af ástæðunum er þriðja plata Beach House, Teen Dream, sem hefur fengið frábæra dóma, meðal annars 9 af 10 mögulegum bæði hjá NME og Pitchforkmedia. Litla frænka Michel LegrandBeach House var stofnuð í Baltimore árið 2005 af þeim Alex Scally sem spilar á gítar og hljómborð og Victori Legrand sem syngur og spilar á orgel. Alex er innfæddur, en Victoria er fædd í Frakklandi. Hún er systkinabarn kvikmyndatónskáldsins Michel Legrand og söngkonunnar Christiane Legrand þannig að það er ljóst að hún á ekki langt að sækja tónlistarhæfileikana. Fyrsta lagið sem vakti athygli á sveitinni var „Apple Orchard“, en það sló í gegn þegar Pitchforkmedia valdi það á MP3-safn með upprennandi tónlistarfólki árið 2006. Sama ár kom fyrsta plata hljómsveitarinnar sem hét eftir henni, Beach House. Hún fékk mjög góðar viðtökur og hafnaði m.a. í 16. sæti yfir bestu plötur ársins hjá Pitchfork. Drauma-poppSöngstíll Victoriu þótti í upphafi minna nokkuð á söngkonuna Nico. Lögin voru frekar hæg og útsetningarnar stemningsfullar sem varð til þess að tónlist Beach House var stundum kölluð „drauma-popp“. Fyrsta plata sveitarinnar kom út hjá Carpark-útgáfunni og það gerði líka önnur platan, Devotion, sem kom út fyrir tveimur árum. Í kjölfar útgáfu Devotion spiluðu Beach House mikið á tónleikum úti um allan heim, en einhvern tímann síðasta vetur tóku þau fyrir allt tónleikahald og lokuðu sig af í nýju æfingahúsnæði í Baltimore til þess að skiptast á hugmyndum og prófa nýja hluti. Lögin á Teen Dream urðu til þar á löngum tíma. Á sama tíma lauflétt og þungTeen Dream var samt ekki hljóðrituð í æfingahúsnæðinu, heldur fundu þau Alex og Victoria litla kirkju einhvers staðar afskekkt í New York-ríki þar sem þau komu sér fyrir og tóku plötuna upp undir stjórn Chris Coady sem er einn af hirðupptökustjórum New York-senu síðustu ára og hefur meðal annars unnið við plötur með Yeah Yeah Yeahs, TV on the Radio, Cass McCombs, !!! og Grizzly Bear. Alex og Victoria eru þeirrar skoðunar að stíf tónleikadagskrá þeirra í kjölfar Devotion hafi haft mikil áhrif á gerð Teen Dream. „Þegar maður spilar mikið á tónleikum fer maður að heyra hlutina öðruvísi,“ segir Victoria í nýlegu viðtali, „og það hefur áhrif á gerð næstu plötu.“ Hún segir líka að nafnið Teen Dream tákni ákveðið frelsi og að í því frelsi felist að platan sé „á sama tíma lauflétt og þung“. Hún bætir svo við hlæjandi: „Ég veit nú ekki hvort hún er í alvöru svo þung, en miðað við fyrri plöturnar okkar er hún það.“ Beach House + Sub Pop = Sönn ástEins og áður segir hefur Teen Dream víðast hvar fengið dúndurgóða dóma. Tónlistinni er líkt við Mazzy Star, Cocteau Twins og My Bloody Valentine. Það er hin síferska Seattle-útgáfa Sub Pop sem gefur plötuna út, en í fréttatilkynningu í tilefni af útgáfunni undir fyrirsögninni Beach House + Sub Pop = Sönn ást er sérstaklega tekið fram að þau Alex og Victoria séu ekki par. Mikilvægar upplýsingar það!
Mest lesið Stjörnum prýtt brúðkaup landsliðsmanns í Grikklandi Lífið Heillandi heimili á Kársnesinu fyrir 236 milljónir Lífið „Fallegur fjölskyldusamruni“ Lífið Ástardúett Stuðmanna í nýjum búning Tónlist Feneyjabúar æfir yfir glæsibrúðkaupi Bezos Lífið Öðruvísi líf: „Veistu Hrund, þú ert eiginlega eins og Forrest Gump“ Áskorun 90% þeirra sem upplifa hárlos meðhöndla það ekki - það er þó hægt Lífið samstarf Trúlofuðu sig á sama stað og þau byrjuðu saman Tónlist Stjörnulífið: Laufey á Íslandi og stjörnubrúðkaup í Grikklandi Lífið 50+: Þegar börnin búa enn heima hátt í þrítugt Áskorun Fleiri fréttir Heillandi heimili á Kársnesinu fyrir 236 milljónir „Fallegur fjölskyldusamruni“ Feneyjabúar æfir yfir glæsibrúðkaupi Bezos Stjörnum prýtt brúðkaup landsliðsmanns í Grikklandi Barnahátíðin Kátt snýr aftur Stjörnulífið: Laufey á Íslandi og stjörnubrúðkaup í Grikklandi Þegar stjórnvöld úðuðu efnum yfir almenning Málaði loftið í lit sem minnir á skólajógúrt Umbreyta Þjóðleikhúskjallaranum í kabarettklúbbinn Kit Kat „Þetta er bara það sem mig hefur langað alla ævi“ Krakkatían: Leðurblökumaðurinn, Elli Egils og 17. júní Eitt lag með eiginmanninum varð að vínylplötu „Eini maðurinn sem er bókaður í golf undir dauðahótunum“ Íslensk áhöfn tekur þátt í endurvakningu Pan Am Þingkonur hlutu blessun Leós páfa Bregðast við bakslagi með Hinsegin Hrísey Fréttatía vikunnar: Fálkaorður, friðlýsing og húðflúr Myndaveisla: Þær voru fjallkonur um land allt í ár Færa Vestur-Íslendingum rausnarlega afmælisgjöf Kemst ekki inn í landið og Hafdís þarf að bíða Matreiðslubókin hlaut eftirsótt alþjóðleg verðlaun Aðstandendur Secret Solstice standa að nýrri hátíð sem hefst með almyrkvanum Einlæg skellibjalla sem stefnir á stóra sviðið Gerðu sumarfríið að heitasta ástarævintýri ársins Eftirrétturinn sem Espresso Martini-aðdáendur elska Katrín Odds og Þorgerður eignuðust sólardreng Ragga Gísla og Hipsumhaps á Innipúkanum sem færir sig um set Væb fara í tónleikaferð um Evrópu Unnur Birna og Pétur keyptu einbýlishús í Garðabæ „Þetta var eins og draumur sem ætlaði aldrei að taka enda“ Sjá meira