Lífið

Elli hættur í Steed Lord

Hljómsveitin Steed Lord, sem er nú orðin þriggja manna hljómsveit, er sátt við lífið í borg Englanna.
Hljómsveitin Steed Lord, sem er nú orðin þriggja manna hljómsveit, er sátt við lífið í borg Englanna. Mynd/úr einkasafni

Meðlimir hljómsveitarinnar Steed Lord hafa verið búsettir í Los Angeles frá því í ágúst í fyrra og að sögn söngkonunnar Svölu Björgvinsdóttur eru þau búin að koma sér vel fyrir í borginni, en þau hyggjast dvelja þar um óákveðinn tíma.

„Það gengur svakalega vel hjá okkur. Við erum búin að búin að gera okkur fallegt heimili hérna í Los Angeles og erum að vinna við það sem við elskum að gera og almennt er maður bara mjög hamingjusamur," segir Svala. Hljómsveitin hefur unnið ötullega að tónlist sinni undanfarið ár og von er á nýrri stuttskífu frá þeim í sumar. Steed Lord gerði einnig nýverið samning við bókunarfyrirtækið AM ONLY sem sérhæfir sig í bókunum á raftónlistarmönnum og er eitt hið stærsta á sínu sviði í Bandaríkjunum.

„Við ætlum að halda áfram að túra um Bandaríkin, Evrópu og Asíu á næstunni. Við túruðum meðal annars með tónlistarkonunni Peaches um vesturströnd Bandaríkjanna fyrir jól og tókum svo sjálf túr um Bandaríkin og Evrópu eftir það. Síðan erum við að fara hanna boli og heyrnartól fyrir sænska fatamerkið WESC fyrir 2011 línuna þeirra sem er rosa gaman. Við höfum verið að vinna með þeim síðustu þrjú árin og tekið þátt í flestum auglýsingaherferðum þeirra síðan þá og það er mjög gaman," segir Svala.

Nokkrar breytingar hafa einnig orðið innan hljómsveitarinnar því meðlimir hennar eru nú aðeins þrír talsins ólíkt því sem áður var. „Steed Lord er núna þriggja manna hljómsveit. Elli er ekki lengur í bandinu, hann býr í London og vildi einbeita sér meira að grafískri hönnun og er líklega að fara í nám þar í borg," segir Svala að lokum. - sm

Hér er hægt að hlusta á tvö ný lög frá Steed Lord, Vanguardian og Bed of Needles.

Hér er tískubloggið hennar Svölu, Killa Kali.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.