Frægur gosflugstjóri heimsækir Ísland 13. september 2010 14:53 Eric Moody kemur til Íslands.
Breski flugstjórinn Eric Moody, sem hlaut frægð er fyrir að bjarga Boeing 747 risaþotu úr eldfjallaösku á Indónesíu fyrir 28 árum, er væntanlegur til Íslands. Hann verður heiðursgestur alþjóðlegu flugráðstefnunnar, um Eyjafjallajökul og flugsamgöngur, sem fram fer á Vallarsvæðinu á Keflavíkurflugvelli síðar í vikunni. Eric Moody var flugstjóri á British Airways-þotunni "City of Edinburgh" með 263 manns um borð þann 24. júní árið 1982 þegar hún flaug í gegnum öskuský frá eldfjallinu Galunggung á eynni Jövu. Flugvélin missti afl á öllum fjórum hreyflum og sveif þannig vélarlaus í átt til jarðar, án þess að áhöfnin áttaði sig á orsökinni. Loftþrýstingur fór af farþegarýminu og súrefnisgrímur, sem sjálfkrafa féllu úr lofti vélarinnar, hjálpuðu farþegum að ná andanum. Flugmennirnir misstu einnig útsýni um framrúðurnar þar sem askan máði þær eins og sandpappír. Yfirlýsing flugstjórans í hátalarakerfið, þegar hann reyndi að róa farþegana, þótti meistaraverk í að gera lítið úr hlutunum, en hann sagði: "Ladies and gentlemen, this is your captain speaking. We have a small problem. All four engines have stopped. We are doing our damnedest to get them under control. I trust you are not in too much distress." Þotan var í 37 þúsund feta hæð þegar hreyflarnir stöðvuðust. Þotan sveif niður um 1.800 fet á mínútu og ákvað að flugstjórinn að freista þess að láta hana svífa í átt til flugvallarins í Jakarta. Hann efaðist hins vegar um að honum tækist að láta hana svífa yfir háan fjallgarð á leiðinni og hóf því undirbúning að nauðlendingu á Indlandshafi. Áður en til þess kom hafði þotan svifið út úr öskuskýinu og tókst áhöfninni að ræsa þrjá hreyfla að nýju, um 16 mínútum eftir að drapst á þeim, og lenda síðan heilu og höldnu á flugvellinum í Jakarta. Lendingin þótti mikið afrek, ekki síst sökum þess að flugmennirnir sáu nær ekkert út um framrúðuna og aðflugshallargeisli virkaði ekki. Flugstjórinn og áhöfn hans hlutu meðal annars heiðursviðurkenningu frá Bretadrottningu og fjallað hefur verið um atburðinn í sjónvarpsþáttaröð um flugslys á Fjölvarpinu.Flugráðstefnan "Eyjafjallajökull and Aviation," fer fram í Andrews ráðstefnusalnum í Ásbrú 15. og 16. september og er skipulögð af ráðstefnuþjónustu og flugskóla Keilis í samstarfi við bæði innlenda og erlenda aðila eins og Alþjóða flugmálastofnunina, Alþjóðasamband flugfélaga, Alþjóðasamtök flugmanna og Samtök evrópskra flugmálastjórna.Skráðir ráðstefnugestir eru 250 með 50 fyrirlesurum.
Mest lesið Töluverður viðbúnaður lögreglu í Kópavogi Innlent „Þetta á náttúrulega ekki að gerast“ Innlent Verkalýðsfélögin úrelt og þau hefði mátt leggja niður um aldamótin Innlent „Í versta falli alvarleg forréttindablinda“ Innlent Gulu hjólunum stillt upp á slysstöðum Innlent Leist ekki á tillögu um opnun Hormússunds Erlent Þúsundir hermanna kallaðir heim frá Þýskalandi Erlent „Mjög gott að við höfum náð að slíðra sverðin“ Innlent Glapræði að fella niður einu ferð dagsins: „Er öllum sama þó Grímsey fari í eyði?“ Innlent Vinna að spálíkani til að skima sjálfvirkt fyrir vannæringu Innlent Fleiri fréttir „Í versta falli alvarleg forréttindablinda“ Katla kjörin forseti Stúdentaráðs Töluverður viðbúnaður lögreglu í Kópavogi Taldi að vegabréfinu hefði verið stolið við Skógafoss „Þetta á náttúrulega ekki að gerast“ „Mjög gott að við höfum náð að slíðra sverðin“ Vinna að spálíkani til að skima sjálfvirkt fyrir vannæringu Beint: Pallborð Leigjendasamtakanna um húsnæðismál Glapræði að fella niður einu ferð dagsins: „Er öllum sama þó Grímsey fari í eyði?“ Það geti ekki hvaða skip sem er dýpkað í mynni Landeyjahafnar „Flokkur fólksins tekur í rauninni út óánægju með ríkisstjórnina“ Óska þess að ákvörðun um spítalann liggi fyrir sem fyrst Meirihlutinn á þingi fallinn, gremja í Grímsey og risadagur í íþróttunum Gulu hjólunum stillt upp á slysstöðum Verkalýðsfélögin úrelt og þau hefði mátt leggja niður um aldamótin Beittir lögreglutökum eftir ógnandi tilburði í miðbæ Fjöldi viðbragðsbíla kom á vettvang falsboðs Meirihlutinn fallinn og VG á þingi Farfuglar koma marktækt fyrr til landsins en áður „Dapurlegt pólitískt útspil“ Höfðinginn átti sig ekki á lokuninni Myndaveisla: Verkalýðsdagurinn haldinn hátíðlegur Sinueldur í Grafarvogi Þetta sé bæjarstjórn Kópavogs til skammar Framboðum Miðflokksins fjölgar um átta milli kosninga Lífið umturnaðist í kjölfar slyssins Bein útsending: Verkalýðsdagurinn haldinn hátíðlegur Sendi ekki reikning og fær því ekki greitt Langhæsti styrkurinn fer til Eyja Vasaþjófnaður aukist að undanförnu Sjá meira