Slökkviliðsmenn þrífa hús á öskufallssvæðinu 23. apríl 2010 12:28 Öskufallið var gríðarlegt fyrstu daga gossins. Nú stendur slökkviliðið vaktina og þrífur hús bænda á svæðinu.
Samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni á Hvolsvelli vinnur nú fjöldi slökkvibíla og slökkviliðsmanna að því að þvo hús á öskufallssvæðinu. Lögreglan segir rólega virkni í eldstöðinni, ekki hafi borist tilkynningar um neitt öskufall en öskumistur er nokkuð vestan við eldstöðina, svo sem í Fljótshlíð og á Hvolsvelli. Samkvæmt Veðurstofu Íslands sýndu vatnsmælingar hækkun yfirborðs í Markarfljóti í nótt og er það í samræmi við jarðskjálftavirkni. Þetta kom fram á upplýsingafundi fjölmiðla í Skógarhlíð í morgun. Jafnframt kom fram að erfitt hefði verið að fylgjast með gosvirkni með gervihnattamælingum vegna þoku í gær. Ratsjármælingar sýndu enga ösku en hún er enn til staðar. Klukkan 7.30 í morgun hafði strókurinn breyst og var farinn að breiða sér meira lárétt en lóðrétt samkvæmt sérfræðingum Veðurstofu, líklega vegna norðvestlægrar áttar en hugsanlega einnig vegna þess að það varð örlítið landsig um kl. 3 í nótt. Öskufalli er spáð norðvestur af eldstöðinni í dag, í nágrenni hennar, en öskumistur (þ.e. truflun á skyggni vegna öskunnar) gæti náð eitthvað vestar. Ekki er spáð öskufalli á höfuðborgarsvæðinu. Umhverfisstofnun mælir loftgæði á landinu og fylgist vel með mælum. Tilkynningar verða gefnar út ef mælingar sýna svifryksmengun yfir hættumörkum og þörf á sérstökum varúðarráðstöfunum. Fólki er bent á að fylgjast með fréttum og upplýsingum og leiðbeiningum á heimasíðu almannavarna, almannavarnir.is og á heimasíðu umhverfisstofnunar, ust.is. Umhverfisstofnun setti upp loftgæðamæli á Kirkjubæjarklaustri fljótlega eftir að gos hófst í Eyjafjallajökli, en þar hefur engin sýnileg aska verið. Samkvæmt upplýsingum stofnunarinnar mældist svifryk þar undir mörkum, en verstu gildi sem mældust þar voru sambærileg við slæman umferðardag í Reykjavík. Loftgæðamælirinn hefur nú verið færður til Víkur. Vegalengd frá eldstöð að Kirkjubæjarklaustri eru rúmir 80 km. Sama vegalengd í vesturátt frá eldstöð nær allt að Laugarvatni eða rétt vestur fyrir Selfoss. Í Samhæfingarstöð almannavarna er náið fylgst með framvindu eldgossins á Eyjafjallajökli og reglulegir stöðufundir haldnir með þeim fjölmörgu stofnunum og fyrirtækjum sem koma að málum. Fundur verður haldinn í Samhæfingarstöð í hádeginu með flugmálayfirvöldum, Landhelgisgæslu Íslands og Veðurstofu Íslands vegna lokana flugvalla þar sem reynt verður að spá fyrir um millilanda- og innanlandsflug næstu daga. Áfram er unnið hörðum höndum að áætlanagerð vegna truflana á flugi. Af öryggisástæðum voru flugvél Landhelgisgæslunnar, TF-SIF, og þyrlan TF-GNA fluttar til Akureyrar þar sem búast má við að loftrýmið umhverfis Keflavíkur- og Reykjavíkurflugvöll lokist fyrir blindflugsumferð í ákveðinn tíma í dag í ljósi spár um gjóskudreifingu fyrir daginn. TF-SIF flaug yfir gosstöðvarnar í morgun á leið til Akureyrar og hafa ratsjármyndir verið sendar Veðurstofu og Raunvísindastofnun til upplýsinga.
Mest lesið Allkröpp lægð á leiðinni til landsins Veður Biður Höllu afsökunar á fréttum af meintum lífvörðum Innlent Samstöðinni verði mögulega lokað í kvöld: Vilja fá lögbann á boðaðan aðalfund Innlent Ældi í rútunni og réðst svo á bílstjórann Innlent Tugir missa vinnuna í sumar Innlent Snurða hljóp á þráðinn í nótt Innlent Fötlun þýði ekki að börn njóti þess minna að róla og leika sér Innlent Hefur í hótunum við New York vegna „kommúnistans“ Mamdani Erlent Bjórpása í Víkinni og lögreglan í heimsókn í Garðabæ Innlent Borgin fékk frest til að svara Umboðsmanni um fundargerðarbreytingar Innlent Fleiri fréttir Sviptur prófinu eftir að hafa ekið á 185 Ældi í rútunni og réðst svo á bílstjórann Sá sem réðst á Ingunni áfrýjar til hæstaréttar Bein útsending: Rektorsskipti í Háskóla Íslands Snurða hljóp á þráðinn í nótt Samstöðinni verði mögulega lokað í kvöld: Vilja fá lögbann á boðaðan aðalfund Strandveiðibátur sökk úti fyrir Patreksfirði Reynt að ná saman um þinglok og hart deilt um Vorstjörnuna Máttu ekki eyða gögnum fyrr en málum væri lokið á öllum dómstigum Bjórpása í Víkinni og lögreglan í heimsókn í Garðabæ Skoða ekki hvort maður hafi mátt binda barn niður og kitla Biður Höllu afsökunar á fréttum af meintum lífvörðum Svörin líklega að finna á Íslandi: Vonlítill um að Jón Þröstur sé á lífi Skjálfti upp á þrjá í Kötlu Fundar með þingflokksformönnum Fötlun þýði ekki að börn njóti þess minna að róla og leika sér Borgin fékk frest til að svara Umboðsmanni um fundargerðarbreytingar Ekkert samkomulag í höfn enn um þinglok Hringsund um Ísland skapi verðmæta þekkingu Óákveðin hvort hún fari aftur fram fyrir Sósíalista: „Mér finnst þetta bara orðið bull“ Tugir missa vinnuna í sumar Segir ráðherra sjálfum í lófa lagið að breyta leikreglum svo ágóðinn rati vestur Segir gömlu samræmdu prófin ekki hafa mælt það sem þurfti Múmínlundurinn verður Ævintýraskógur á meðan leyst er úr höfundarrétti Störf á landsbyggðinni, skortur á sérfræðiþekkingu kennara og óperugala Sektaður fyrir að vera á 101 kílómetra hraða í 101 Rektorar allra íslenskra háskóla lýsa yfir miklum áhyggjum Ekki gagnlegt að stilla fyrirtækjum upp gegn starfsfólki Krefst aðkomu Vinstri grænna að endurmótun varnarmálastefnu Skýrslutökum írsku lögreglunnar lokið Sjá meira