Innlent

Ákærður fyrir að lemja tvo lögregluþjóna með mánaðar millibili

Lögreglan hefur tvívegis orðið fyrir barðinu á manninum.
Lögreglan hefur tvívegis orðið fyrir barðinu á manninum.

Karlmaður á fertugsaldri hefur verið ákærður fyrir að slá lögregluþjón með krepptum hnefa í andlitið í nóvember á síðasta ári þegar hann hugðist hafa afskipti af manninum vegna skyldustarfa sinna. Árásin átti sér stað í fangaklefa á Húsavík.

Það leið svo ekki nema um mánuður þangað til sami maður á að hafa skallað annan lögregluþjón í ennið og slegið hann með krepptum hnefa í höfuðið. Sú árás á að hafa átt sér stað utandyra við Skottugil á Akureyri í desember 2009.

Málið var þingfest í Héraðsdómi Reykjaness í morgun. Það er ríkissaksóknari sem sækir málið.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×