Lagfæringar á veginum inn í Þórsmörk að hefjast 25. maí 2010 13:00 Vegurinn fór í sundur vegna eldgossins.
Lagfæringar á veginum inn í Þórsmörk hefjast í vikunni og reiknað er með að fært verði inn í Mörk um næstu helgi. Það er eigi að síður í valdi Almannavarna hvort umferð verði leyfð á svæðinu samkvæmt upplýsingum sem finna má á vefsíðu Vegagerðarinnar. Vinna við endurbætur á varnargörðum við Svaðbælisá eru hafnar og heldur sú vinna áfram næstu vikur. Vinna við aðra garða og endanlegur frágangur á bráðabrigðaviðgerð Hringvegarins við Markarfljótsbrúna fer fljótlega af stað. Reiknað er með að komið verði bundið slitalag á viðgerðina á Hringveginum í síðasta lagi í júlí. Unnið hefur verið að því um helgina að flytja grjót í varnargarðana að austanverðu við Markarfljótsbrýrnar, bæði þá gömlu og þá nýju, sem skemmdust í flóðunum í upphafi gossins. Vinnan við lagfæringarnar hefjast nú í vikunni líka. Framtíð varnargarða innst inn í Fljótshlíð verður rædd á fyrsta fundi samráðshóps sveitarfélaga, vegagerðarinnar og Landgræðslunnar en þeir garðar sem skemmdust í flóðinu eru fyrst og fremst landgræðslugarðar. Í framhaldi þessa aðgerða verður upphleðsla aurs í farvegi Markarfljóts mæld og tekin ákvörðun í framhaldinu um hækkun og styrkingu alls varnargarðakerfisins reynist þess þörf. Hægt er að nálgast frekari upplýsingar á vef Vegagerðarinnar.
Mest lesið Kæra sautján ára Íslendings varð að einu umtalaðasta kynferðisbrotamáli Ítalíu Innlent Matthías kominn á áfangaheimili Innlent „Þessi kona er ekkert skyni skroppin“ Innlent Efast um að fólk í undirheimunum pæli í tuftvélinni Innlent Leitar enn hunds sem týndist fyrir 38 árum Innlent Ríflega 75 hafa afbókað gistingu á Hótel Breiðavík í aðdraganda almyrkva Innlent Ekkert bendi til annars en að um slys hafi verið að ræða Innlent Fimmtíu myndaðir og fimm handteknir í alþjóðlegum aðgerðum gegn vændi á Íslandi Innlent Hækka gjald fyrir heilsugæslu og taka upp nýtt fyrir sjúkraþjálfun Innlent Björguðu lambinu sem vildi ært komast til frænda sinna Innlent Fleiri fréttir Gerðar út fyrir tuttugu þúsund krónur á hálftímann Á hæsta forgangi vegna steypubíls sem lenti í Þjórsá Sú gula spókar sig á Suðurlandi á morgun „Þessi kona er ekkert skyni skroppin“ „Enginn búið til fleiri þjóðaratkvæðagreiðslur en ég“ Uppljóstrað um kínverskt glæpanet og Kristján Loftsson mætir í beina útsendingu Húsfyllir á stofnfundi hjá Áfram Ísland Fræða almenning í aðdraganda þjóðaratkvæðagreiðslunnar Leitar enn hunds sem týndist fyrir 38 árum Átta handteknir vegna fíkniefnaræktunnar Hækka gjald fyrir heilsugæslu og taka upp nýtt fyrir sjúkraþjálfun Ekkert bendi til annars en að um slys hafi verið að ræða Strætó og sláttutraktor lentu saman Enginn handtekinn en áfram áætlað að sömu aðilar hafi verið að verki Gönguljósin á Miklubraut: Bráðalausn eða bið eftir stokknum? Ríflega 75 hafa afbókað gistingu á Hótel Breiðavík í aðdraganda almyrkva Sýknuð af kröfum Vestmannaeyjabæjar Fimmtíu myndaðir og fimm handteknir í alþjóðlegum aðgerðum gegn vændi á Íslandi Forseti tekur sæti í ráðgjafanefnd um gervigreind Beinbrot og minniháttar áverkar í rútuslysi Efast um að fólk í undirheimunum pæli í tuftvélinni Rútuslys, umferðarhnútar og afbókanir í almyrkva Matthías kominn á áfangaheimili Sex slasaðir í rútuslysi í Suðursveit Kona mannsins sem lést þungt haldin Eina tilboðinu í ráðhúströppurnar hafnað og verkið boðið út að nýju Ráðin forstöðumaður Heyrnar- og talmeinastöðvar Viðbragðsáætlun virkjuð vegna fjarskiptaleysis á Sjúkrahúsinu á Akureyri Kæra sautján ára Íslendings varð að einu umtalaðasta kynferðisbrotamáli Ítalíu Kölluð til vegna æsts húsráðanda í Hafnarfirði að horfa á leik á HM Sjá meira