Tæp 11% treysta Alþingi vel Jón Hákon Halldórsson skrifar 18. maí 2010 14:54
Einungis 10,5% landsmanna bera mikið traust til Alþingis, ef marka má nýja könnun MMR. Þeir voru 18% í sömu könnun MMR frá því í september. Jafnframt fjölgar þeim sem segjast bera lítið traust til Alþingis, eru nú 56,4% en voru 52,4% í september 2009. Þeim sem bera mikið traust til lífeyrissjóðanna fækkar frá fyrri könnunum, nú segjast 9,8% bera mikið traust til þeirra borið saman við 16,7% í könnuninni frá september 2009. Að sama skapi hefur vantraust á lífeyrissjóðunum aukist, í desember 2008 sögðust 32,7% bera lítið traust til lífeyrissjóðanna en nú segjast 61,8% bera lítið traust til þeirra. Lögreglan nýtur trausts 78,9% aðspurðra sem er svipað og í fyrri könnunum MMR. 69,7% segjast bera mikið traust til Háskóla Íslands og 54,2% segjast bera mikið traust til Háskólans í Reykjavík sem er sambærilegt hlutfall og í fyrri könnunum. Þeim sem segjast bera mikið traust til Ríkisútvarpsins fækkar, nú bera 51,8% mikið traust til Ríkisútvarpsins en hlutfallið var 64,2% í könnun MMR í september 2009. Þessar fjórar ofantaldar stofnanir njóta áfram mun meira trausts en aðrar stofnanir sem spurt var um í könnuninni. Þeim fjölgar lítillega sem segjast bera lítið traust til ríkisstjórnarinnar. 58,9% segjast bera lítið traust til hennar nú en 54,8% sögðust bera lítið traust til hennar í september 2009. 19,3% aðspurðra segjast bera mikið traust til ríkisstjórnarinnar sem er svipað og var í desember 2008 en þá sögðust 19,2% bera mikið traust til ríkisstjórnarinnar. Tæp 54% segjast bera lítið traust til stjórnarandstöðunnar og 14,0% segjast bera mikið traust til hennar. Bankakerfið situr enn á botninum en 4,6% segjast bera mikið traust til þess og flestir aðspurðra vantreysta bankakerfinu eða 77,8%.
Mest lesið Eiganda Trump Burger verður sparkað úr landi Erlent Alelda bíll á Emstruleið Innlent Lögreglan tekur leigubílamálin fastari tökum Innlent Skotárás á Times Square Erlent Rannsaka ásakanir á hendur ríkissáttasemjara Innlent „Úkraínumenn þurfa örugglega að gefa eftir land“ Erlent Lést eftir skyndileg veikindi við klettastökk Innlent Rekinn eftir tvo mánuði hjá skattinum og samdægurs tilnefndur sendiherra á Íslandi Erlent Taka þurfi ráðgjöf Hafró til endurskoðunar Innlent Gefur ekkert landsvæði eftir Erlent Fleiri fréttir Sendiherra á Íslandi á grundvelli misskilnings Pallaball fram á rauðanótt: „Farðu og finndu fólkið þitt!“ Lögreglan tekur leigubílamálin fastari tökum Vond staða Úkraínu, furðukenning um geimverur og Gleðigangan Taka þurfi ráðgjöf Hafró til endurskoðunar Alelda bíll á Emstruleið Vond niðurstaða Úkraínu, ásakanir á hendur sáttasemjara og síðasta hlaupið Mikill meirihluti hefur áhyggjur af stríðsátökum Rannsaka ásakanir á hendur ríkissáttasemjara Samdráttur og vítahringur í boði stjórnvalda Ekki stafi lengur tilvistarógn af Hamasliðum Lést eftir skyndileg veikindi við klettastökk Segjast ekkert hafa vitað um hætturnar í Reynisfjöru Féll fjóra metra í vinnuslysi í Kópavogi Ómeðvitaðir ferðamenn í Reynisfjöru, síbökuð hjón og tölvuspil fram á nótt Enginn árangur af „veiða og sleppa“ aðferðinni Flokkarnir dæla milljónum í áróður á Meta Hræðast að fleiri en einn fari í sjóinn Átökin „hvorki vegna né þrátt fyrir“ áfengissöluna Heitavatnslaust í Laugardal Lést við flúðasiglingar í Vestari-Jökulsá Langflestir telja sig búa á góðum stað fyrir samkynhneigða Áttu ekki von á neinu veseni og viðbúnaður eftir því Amma ræsti neyðarhnapp við enn eina árás dóttur sinnar Maður féll í Vestari-Jökulsá Fangar í einangrun vegna sama máls noti ekki sama útisvæði Hundarnir þegar aflífaðir en ákvörðun um lógun ólögmæt Samskipti fanga í einangrun, tapsárir Danir og drottning Gleðigöngunnar Allir fundir við ESB „fyrst og fremst“ hagsmunagæsla Telja að lífvörður myndi aðeins gera ferðamenn kærulausari Sjá meira