Mikið offramboð á svínakjöti í landinu 22. júlí 2010 06:00 Formaður Svínaræktarfélags Íslands segir samdrátt vera í hverjum einasta mánuði hjá svínabændum.
Hörður Harðarson, formaður Svínaræktarfélags Íslands, segir samdrátt vera í hverjum einasta mánuði hjá svínabændum. Á síðustu tólf mánuðum hefur neysla á svínakjöti minnkað um 10,2 prósent en framleiðslan um 9,2 prósent. „Það er mjög lágt verð í verslunum, oft langt undir framleiðslukostnaði,“ segir Hörður. „Þrátt fyrir þennan mikla samdrátt í framleiðslu virðist enn vera framleitt of mikið, sem birtist í undirboðum á markaði.“ Sigmundur Ófeigsson, framkvæmdastjóri hjá Norðlenska, segir alla svínarækt á Íslandi rekna með tapi. „Stórvirkjanir í góðærinu drógu með sér innflutt vinnuafl sem kom frá löndum þar sem svínakjöt er algengt á borðum. Á þeim tíma var gríðarleg svínakjötsneysla í landinu en nú er það fólk farið,“ segir hann. „Fólk er líka farið að nýta matinn betur í dag og heildarneysla hefur minnkað.“ Sigmundur segir sölu á nautakjöti og kjúklingi vera að aukast á síðustu misserum og fólk sé að sækja meira í sveigjanlegri matvörur. „Nautahakkið er mjög vinsælt, enda til margs nýtanlegt,“ segir hann. „Íslenskar landbúnaðarvörur eins og grænmeti og fiskur eru líka að sækja í sig veðrið.“ Salan á lambakjöti dróst saman um 5,3 prósent á síðustu tólf mánuðum, en sé litið til sölu í júní 2010 jókst salan um 35 prósent miðað við sama mánuð í fyrra. Sigurgeir Sindri Sigurgeirsson, formaður Landssamtaka sauðfjárbænda, segir þær niðurstöður virkilega ánægjulegar og greinilegt sé að málin séu á réttri leið. „Útflutningur gengur vel og framleiðslan helst stöðug. Það hafa verið miklar sveiflur í innanlandssölunni, en þegar samdráttur er innanlands flytjum við bara meira út,“ segir hann. Flutt voru út 170 tonn af kindakjöti í júní 2010, sem er 182 prósentum meira heldur en á sama tíma í fyrra. Byggja þessar tölur á gögnum um sölu á kjöti í verslunum, kjötvinnslum og veitingahúsum. sunna@frettabladid.is
Mest lesið Nýjar reglur í lauginni og Björn rekinn á dyr Innlent Fundu blóðuga exi og kaðal eftir að kærastinn var handtekinn Innlent Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Innlent „Nú er þessi sleggja að koma fram“ Innlent „Síðan er ég bara með hreindýrskálf að lykta af rassinum á mér“ Innlent Vilja öll greiða atkvæði um að kljúfa sig frá Bretlandi Erlent Samkvæminu slúttað vegna brots á lögum Innlent Fékk nóg og er hættur á Facebook Innlent „Ætlunin er ekki að aðlaga þá aftur að samfélaginu“ Innlent Forstjórar gervigreindarfyrirtækja segja hættu á ferðum og hægja þurfi á þróun Erlent Fleiri fréttir „Hverjir tala við mömmu mína?“ Bókun 35 útskýrð á mannamáli Brotist inn í fyrirtæki í miðborginni Slökkvilið í Hafnarfjörð „Síðan er ég bara með hreindýrskálf að lykta af rassinum á mér“ Tvær þyrlur út á ystu nöf lögsögunnar Sökk í þriðja sinn í höfninni „Nú er þessi sleggja að koma fram“ Nýjar reglur í lauginni og Björn rekinn á dyr Forsætisráðherra um gjaldskrárhækkanir og ESB-umsókn „Ætlunin er ekki að aðlaga þá aftur að samfélaginu“ Kristrún ræðir málin á Sprengisandi Samkvæminu slúttað vegna brots á lögum Fundu blóðuga exi og kaðal eftir að kærastinn var handtekinn Óttast að fjármagn til námsgagna rati ekki rétta leið Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Óttast að umræðan muni dragast fram á sumar Fékk nóg og er hættur á Facebook Guðmundur Ari í varaformanninn Flugvirkjar hafi þegar fengið hækkanir „Þetta er fullkomið áfall“ Trúir á lausn þrátt fyrir vantrauststillögu Formaður SÁÁ bjartsýnn og Icelandair svarar fyrir sig Þrír kærðir fyrir líkamsárásir „Ég hef nú ekkert verið að gráta yfir þessu“ Lét lífið á Keflavíkurflugvelli Sektaður fyrir að skila ekki yfirliti um heimagistingu Enn þykknar upp hjá SÁÁ Ljósagatnamótin eigi að duga næstu tuttugu ár Allir stjórnmálaflokkar, Áfram Ísland og Sjá til skoðunar Sjá meira