Ingvar staðgengill Magga Ólafs 15. febrúar 2010 05:00 Var eins og fílamaðurinn! Magnús Ólafsson komst í hann krappann á Mömmu Gógó. Ingvar E. Sigurðsson leysti hann af. „
Ég missti eina tröppu úr þegar ég var fara á klósettið í hléinu á Mömmu Gógó, datt kylliflatur og hálfrotaðist. Lét mig þó hafa það að klára myndina. Ég var með kúlu á hausnum og það var ekki fyrr en daginn eftir að ég fór að finna fyrir þessu. Ég endaði á spítala og var þar fjóra daga. Ég missti svo mikið blóð. Það rifnaði eitthvað inni mér," segir leikarinn Magnús Ólafsson, sem komst í hann krappann á dögunum. Slysið kom sér illa því Magnús var bókaður í stuttmynd. „Ég átti að fara að glíma við mjög skemmtilegt hlutverk í nýrri stuttmynd sem María Reyndal er að gera," segir hann. „Ég þurfti að sleppa því og Ingvar E. Sigurðsson hljóp í skarðið fyrir mig. Áður en hún sá mig hélt María að það væri bara hægt að sminka yfir þetta, en ég var alveg afskræmdur. Bara eins og Fílamaðurinn í framan!" Magnús, sem meðal annars er þekktur fyrir hlutverk sín sem Bjössi bolla og bæjarstjórinn í Latabæ, sér mjög eftir þessu hlutverki. „Ég átti að leika illmenni og karlrembu sem flytur inn tailenskar konur," segir hann. „Ég er vanur að leika góða karla svo þetta var mikil áskorun. Ég var efins um að ég gæti þetta en María hafði trú á mér. Við vorum búin að æfa og þetta stefndi allt í rétta átt. Ingvar hefur þó örugglega rúllað þessu upp því hann hefur reynslu í að leika illmenni." Magnús var fljótur að ná sér eftir hnjaskið - „Ég er stálsleginn núna. Betri en áður, ef eitthvað er," segir hann og hlær. „Ég er að leikstýra hjá Flensborg þessa dagana og svo er bara ýmislegt í deiglunni." - drg
Mest lesið Reynir og Sólveig giftu sig í rauðu Lífið Á götunni ellefu ára og segir kerfið hafa gefist upp þegar hún var þrettán Lífið Laufey Lín sló í gegn á Coachella Tónlist Sigurður Sævar og Guðbjörg í sundur Lífið Britney farin í meðferð Lífið Stjörnulífið: Helen og Ruben ástfangin á Ítalíu Lífið Mesta áskorunin að greinast með hryggskekkju Lífið „Að fá þessa greiningu er ekki endapunktur“ Lífið Söngvari Massive Attack handtekinn á mótmælum Lífið Ekki er allt sem sýnist í Dimmu Tónlist Fleiri fréttir Mesta áskorunin að greinast með hryggskekkju Sigurður Sævar og Guðbjörg í sundur Britney farin í meðferð Reynir og Sólveig giftu sig í rauðu Á götunni ellefu ára og segir kerfið hafa gefist upp þegar hún var þrettán Söngvari Massive Attack handtekinn á mótmælum Stjörnulífið: Helen og Ruben ástfangin á Ítalíu Fortíðarþrá einkenndi endurkomuna á stóra sviðið Eilíf glötun bíður ekki endilega bóka í ruslagámum „Að fá þessa greiningu er ekki endapunktur“ Neyðarlegast að handleggsbrjóta vinkonu á sviði Krakkatía vikunnar: Skoffín, geitur og jarðarber Allir og amma þeirra í bókaklúbb Brúðkaupsdagurinn skilaði rúmum þremur milljónum Tónlist sem tekur á skömm og ótta með nokkrum blótsyrðum Steig fram eftir að sex ára dóttir hennar varð fyrir rasisma Mildari og þolinmóðari við sjálfa sig eftir greininguna Fréttatía vikunnar: Bó, vatn og vopnahlé Leitaði upprunans og fékk óvænta frænku í heimsókn Páll Edwald og Selma Eir trúlofuð „Er ég að klikka strax í 50?“ „Maður þarf að gera alla hluti upp“ Umdeildi brautryðjandinn Afrika Bambaataa allur Lærði að lifa lífinu upp á nýtt eftir alvarleg veikindi Sjarmatröllið sem setti popptónlist í öndvegi Halla gerir undantekningu vegna andlátsins Það er komið gó hjá Bó Svala minnist pabba síns Tekur við af dóttur kærastans Lifir með sjúkdóminum en lætur ekkert stöðva sig Sjá meira