Rómantískir skartgripir fyrir skó komnir í sölu 18. júní 2010 12:30 Elísabet segir innblásturinn vera skóhlífar sem herramenn notuðu í upphafi 19. aldar.
Elísabet Björgvinsdóttir var orðin leið á hinum hörðu og köldu tískustraumum. Hún ákvað því að lífga upp á þetta, hannaði eigin tískulínu sem hún selur í eigin netverslun á slóðinni Babette.is. „Ég var komin með ógeð á öllum svörtu skónum mínum og langaði að flikka upp á skóskápinn minn. Það má eiginlega kalla þetta skartgripi fyrir skó," segir Elísabet, sem nýverið opnaði búð á Netinu þar sem hún sýnir sitt eigið merki, Babette. Sjá má alls kyns útgáfur af skóskartinu í myndasafninu hér fyrir neðan. Hún hannar jakka, slár, sokka og fleira samhliða skóskartinu. Babette er bein þýðing af nafninu Elísabet á frönsku, en innblástur hönnunarinnar kemur frá Parísartískunni sem Elísabet er mjög heilluð af. Fallegir litir og munstur einkenna hönnunina og Elísabet notar kanínuskinn, leður, kögur og blúndur í skóskartið. Innblásturinn er komin frá skóhlífunum sem herramenn notuðu í upphafi 19. aldar til að verja skóna sína. Skóskartið er hins vegar meira til skrauts en varnar. „Ég var orðin leið á því hvað íslensk hönnun er oft grá og dimm. Allt of mikið um svartar flíkur og harða, kalda tískustrauma. Mig langaði að lífga aðeins upp þetta og koma með smá rómantík inn á markaðinn. Okkur á Íslandi veitir ekki af." Mikil gróska er í íslenskri hönnun um þessar mundir og fingrafimir einstaklingar farnir að hleypa hönnun sinni út fyrir veggi heimilisins. Elísabet hræðist hvorki samkeppni né samdrátt. „Ég er bjartsýnismanneskja að eðlisfari og hugsaði bara af hverju ég ætti ekki að geta gert þetta eins og aðrir. Það er mjög gaman að sjá hvað það er mikið um hæfileikaríkt fólk á Íslandi," segir hún. Verslunin KronKron er í sérstöku uppáhaldi hjá henni. Elísabet er heimavinnandi með tvo litla stráka og finnst yndislegt að geta sinnt áhugamáli sínu að vild en stefnir jafnframt langt. Hún ætlar að taka þátt í hinum geysivinsæla Pop Up-markaði síðar í sumar þar sem nálgast má hönnun hennar. alfrun@frettabladid.is Skóskraut frá Babette. Sjá má fleiri týpur í myndasafninu fyrir neðan.
Mest lesið Lady Gaga orðin mamma Lífið Herbert kveikti í myndverinu í fyrsta þætti Lífið Presturinn sem hataði kristinfræði Lífið Fréttatía vikunnar: Þagnargreiðsla, tannbursti og hálfvitar Lífið „Verstur af öllu er helvítis doðinn, vera heima og vorkenna sér“ Tónlist Pétur og Birgitta nýtt par Lífið Saga um par með Downs og dverga reyndist tröllasaga Lífið Iceguys í erlendum raunveruleikaþætti Lífið Sigrún Ósk mætt á RÚV Lífið Sökuð um að siga fylgjendum á móður fyrrverandi Lífið Fleiri fréttir Lady Gaga orðin mamma Herbert kveikti í myndverinu í fyrsta þætti Presturinn sem hataði kristinfræði Fréttatía vikunnar: Þagnargreiðsla, tannbursti og hálfvitar Sökuð um að siga fylgjendum á móður fyrrverandi Iceguys í erlendum raunveruleikaþætti TikTok-stjörnur fjölga mannkyninu Pétur og Birgitta nýtt par Sigrún Ósk mætt á RÚV Saga um par með Downs og dverga reyndist tröllasaga Hvað veistu um... gönguleiðir? „Ég þurfti að segja heiminum að þú værir með krabbamein“ Persónuleg Vala Matt opnar sig um einkalífið Fallegar kveðjur og ósagðar sögur af meistara grínsins Faldi diktafóna, tók myndir og át til að fanga stemminguna Uppeldisfræðingurinn reyndist vel sósuð fótboltabulla Öldrunarlæknir og verkfræðingur selja miðbæjarperlu Ungfrú Austurríki látin aðeins 22 ára Leiðir skilja hjá leikhúspari Stærðarinnar hola gleypti innkeyrslu Cage Nornir komu saman á miðilsfundi Átti óheillavænlegt samtal við Kennedy fyrir flugslysið: „Ég þarf ekki aðstoðarflugmann“ Prinsinn hefur nám við Eton-skóla Hafnaði tæpum fimm milljarða þagnarsamningi Musks South Park verður South America Kappsmál sett á ís Áslaug Arna setur lúxusíbúð á leigu Hvað veistu um… textana hans Bubba? Engin ákvörðun tekin um Eurovision þátttöku Sögufrægt verslunarhús til sölu Sjá meira