Innlent

Ökumaður í tómu tjóni á Grensásvegi

Ökumaður, sem lögreglan stöðvaði á Grensásvegi í nótt vegna hraðaksturs, reyndist hafa sitthvað fleira á samviskunni, því hann var líka fullur.

Hann var auk þess próflaus, eftir að hafa misst réttindin fyrir ölvunarakstur, og loks var bíllinn ótryggður. Hann á yfir höfði sér bæði sektir og dóm.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×