Þeir ríkustu í Hollywood 6. febrúar 2010 06:30 Lepja ekki dauðan úr skel
Kvikmyndaframleiðandinn og -leikstjórinn Michael Bay græddi mest allra í Hollywood á síðasta ári samkvæmt rannsókn tímaritsins Vanity Fair, eða um sextán milljarða króna. Þrátt fyrir að minna fjármagn hafi flögrað um í Hollywood í fyrra en oft áður virðist það ekki hafa haft áhrif á toppana í kvikmyndaborginni. Samkvæmt útreikningum Vanity Fair, sem eru byggðir á áætluðum tekjum, græddi Michael Bay um 9,6 milljarða króna á hasarmyndinni Transformers: Revenge of the Fallen, bæði fyrir leikstjórn sína og framleiðslu. Alls græddi myndin tæpa 107 milljarða í miðasölu víðs vegar um heiminn, þrátt fyrir að hún hafi fengið misjafna dóma gagnrýnenda. Bay fékk einnig í vasann um 3,6 milljarða fyrir DVD-sölu myndarinnar og um 1,6 milljarða fyrir leikfangasölu og gjöld tengd höfundarrétti hans. Alls námu tekjur hans um 16 milljörðum bæði fyrir Transformers og önnur verkefni sem hann kom nálægt, sem eru ekki slæm árslaun hjá einum og sama manninum. Framleiðendur og leikstjórar eru einnig í næstu fjórum sætum á eftir Bay, eða þeir Steven Spielberg, Roland Emmerich, James Cameron og Todd Philips. Spielberg fékk tæpa 10,8 milljarða á síðasta ári, þar af um 2,5 milljarða fyrir að framleiða og leikstýra nýrri ævintýramynd um teiknimyndahetjuna Tinna sem kemur út á næsta ári. Emmerich græddi tæpa níu milljarða á stórslysamyndinni 2012 sem var sýnd síðasta sumar en alls þénaði hún tæpa 96 milljarða króna. Cameron þénaði um 6,4 milljarða á stórmyndinni Avatar, sem er þegar orðin tekjuhæsta mynd allra tíma, og Todd Phillips fékk um 5,6 milljarða í vasann fyrir hinn óvænta gamansmell The Hangover. Tekjuhæsti leikarinn á listanum var sjálfur Harry Potter, eða Daniel Radcliffe, með svipaðar tekjur og Phillips, eða um 5,2 milljarða. Næstir á eftir honum komu leikaranir Ben Stiller og Tom Hanks. -fb CANNES, FRANCE - MAY 18: Director Steven Spielberg and actor Harrison Ford attend Indiana Jones and The Kingdom of The Crystal Skull - photocall at the Palais des Festivals during the 61st International Cannes Film Festival on May 18 , 2008 in Cannes, France. (Photo by Gareth Cattermole/Getty Images) steven spielberg Harrison ford - cannes 2008 Michael Bay NEW YORK - JUNE 15: Actor Daniel Radcliffe arrives at the 62nd Annual Tony Awards held at Radio City Music Hall on June 15, 2008 in New York City. (Photo by Bryan Bedder/Getty Images) Daniel Radcliffe NEW YORK - AUGUST 01: Actor Tom Hanks attends the honoring of actress Rita Wilson with a caricature for her Broadway debut in "Chicago" on August 1, 2006 at Sardi's Restaurant in New York City. (Photo by Bryan Bedder/Getty Images) Tom Hanks
Mest lesið Stjörnum prýtt brúðkaup landsliðsmanns í Grikklandi Lífið 50+: Þegar börnin búa enn heima hátt í þrítugt Áskorun Stjörnulífið: Laufey á Íslandi og stjörnubrúðkaup í Grikklandi Lífið Feneyjabúar æfir yfir glæsibrúðkaupi Bezos Lífið Heillandi heimili á Kársnesinu fyrir 236 milljónir Lífið 90% þeirra sem upplifa hárlos meðhöndla það ekki - það er þó hægt Lífið samstarf Málaði loftið í lit sem minnir á skólajógúrt Lífið „Fallegur fjölskyldusamruni“ Lífið Ástardúett Stuðmanna í nýjum búning Tónlist Þegar stjórnvöld úðuðu efnum yfir almenning Lífið Fleiri fréttir Heillandi heimili á Kársnesinu fyrir 236 milljónir „Fallegur fjölskyldusamruni“ Feneyjabúar æfir yfir glæsibrúðkaupi Bezos Stjörnum prýtt brúðkaup landsliðsmanns í Grikklandi Barnahátíðin Kátt snýr aftur Stjörnulífið: Laufey á Íslandi og stjörnubrúðkaup í Grikklandi Þegar stjórnvöld úðuðu efnum yfir almenning Málaði loftið í lit sem minnir á skólajógúrt Umbreyta Þjóðleikhúskjallaranum í kabarettklúbbinn Kit Kat „Þetta er bara það sem mig hefur langað alla ævi“ Krakkatían: Leðurblökumaðurinn, Elli Egils og 17. júní Eitt lag með eiginmanninum varð að vínylplötu „Eini maðurinn sem er bókaður í golf undir dauðahótunum“ Íslensk áhöfn tekur þátt í endurvakningu Pan Am Þingkonur hlutu blessun Leós páfa Bregðast við bakslagi með Hinsegin Hrísey Fréttatía vikunnar: Fálkaorður, friðlýsing og húðflúr Myndaveisla: Þær voru fjallkonur um land allt í ár Færa Vestur-Íslendingum rausnarlega afmælisgjöf Kemst ekki inn í landið og Hafdís þarf að bíða Matreiðslubókin hlaut eftirsótt alþjóðleg verðlaun Aðstandendur Secret Solstice standa að nýrri hátíð sem hefst með almyrkvanum Einlæg skellibjalla sem stefnir á stóra sviðið Gerðu sumarfríið að heitasta ástarævintýri ársins Eftirrétturinn sem Espresso Martini-aðdáendur elska Katrín Odds og Þorgerður eignuðust sólardreng Ragga Gísla og Hipsumhaps á Innipúkanum sem færir sig um set Væb fara í tónleikaferð um Evrópu Unnur Birna og Pétur keyptu einbýlishús í Garðabæ „Þetta var eins og draumur sem ætlaði aldrei að taka enda“ Sjá meira