Verður mjótt á mununum 6. febrúar 2010 07:00 Hver gerir þetta perfekt í kvöld? Flytjendur laganna sex, Íris Hólm, Matti, Hvanndalsbræður, Jógvan, Sjonni og Hera Björk. Bubbi er alveg slakur yfir kvöldinu en Páll Óskar er spenntur. Hann verður svo með Eurovisiongleði á Nasa strax á eftir því að úrslit verða kunn í kvöld.
Í kvöld ræðst hvaða lag verður 23. Eurovision-framlag Íslands. Sex lög berjast um hylli landsmanna og spennan er gífurleg. Það sem vakti mesta athygli í byrjun Söngvakeppninnar í ár var að Bubbi Morthens sendi lag í keppnina í félagi með Óskari Páli. Bubbi hafði hingað til verið algjörlega á móti keppninni, en sá ljósið þegar hann sá kvikmyndina Mamma Mia og uppgötvaði að hann var aðdáandi Abba. Lagið er „One more day“ sungið af Færeyingnum Jógvani. Bubbi er ekkert að æsa sig yfir þessu. „Það er til fólk sem heldur að Eurovision sé upphaf og endir veraldar og það voru einhverjir svoleiðis sem fóru í gang í paniki yfir því að við Óskar og Jógvan vorum þarna,“ segir hann. „Þeim fannst sér ógnað. En nei, blessaður maður, ég er alveg slakur yfir þessari keppni. Ég er að fara að vinna næstu plötu og á svo eftir að vinna meira með Óskari Páli.“ En sendir Bubbi aftur inn lag í Söngvakeppnina? „Hver veit? Kannski verð ég langt fram á áttræðisaldur sendandi inn Eurovision-lög! Það væri ágætis húmor. Sérðu Johnny Lee Hooker fyrir þér?Fjögur góð lögEn hvað segir Eurovision-spekingur Íslands? Gjörðu svo vel, Páll Óskar: „Ég er ánægður með þessi undanúrslit. Undanfarin ár hafa kannski bara verið tvö lög sem ég hef fílað og finnst skilið að fara út, en núna eru þau fjögur. Hera Björk er ofsalega flott söngkona með klæðskerasniðið Eurovision-keppnislag. Jógvan er svo sætur að mig langar til að kreista hann og klípa í nefið á honum. Mig hefur langað til þess síðan ég var að dæma hann í gamla daga í X-factor. Óskar Páll er búinn að flíkka upp á lagið svo það verður gaman að fylgjast með því. Mér finnst Hvanndalsbræður koma mjög sterkir inn með svona Madness-legt lag. Ég fíla þá alveg í botn og þeirra húmor. Svo skal ég lofa þér því að Sjonni Brink er með hittara í höndunum og það lag verður spilað í klessu í útvarpinu eftir keppnina. Svo þarna eru fjórir mögulegir til að vinna þetta. Við megum samt ekki gleyma Írisi Hólm, sem á góða möguleika til að verða Celine Dion okkar Íslendinga. Það sem henni vantar eru bara betri lög. Eina lagið sem mér finnst hvorki fugl né fiskur er lagið með Matta, en það hefur ekkert með hann að gera sem söngvara.“Palli segir það sýnt og sannað að sá sem vinnur er flytjandinn, ekki tegund lagsins.„Það verður mjótt á mununum en sá sem er að fara út er sá sem gerir þetta perfekt í kvöld. Það er alltaf flytjandinn sem dregur sigurinn í land, hvort heldur sem það eru finnskir þungarokkarar í skrýmsla-latexi eða eróbikgella frá Úkraínu með vinum sínum úr spinninghópnum. Það er með þetta - eins og með allt annað í lífinu - það skiptir öllu að gera hlutina af heilindum. Ef hugurinn fylgir máli þá nær maður langt. Það er þetta sem ég verð að hugsa um þegar ég ýti á takkana á símanum mínum í kvöld.“drgunni@frettabladid.is
Mest lesið Reynir og Sólveig giftu sig í rauðu Lífið Sigurður Sævar og Guðbjörg í sundur Lífið Á götunni ellefu ára og segir kerfið hafa gefist upp þegar hún var þrettán Lífið Laufey Lín sló í gegn á Coachella Tónlist Britney farin í meðferð Lífið Stjörnulífið: Helen og Ruben ástfangin á Ítalíu Lífið Mesta áskorunin að greinast með hryggskekkju Lífið Þórdís Kolbrún og Dagur byrjuð með hlaðvarp saman Menning „Að fá þessa greiningu er ekki endapunktur“ Lífið „Litlu hlutirnir gefa lífinu merkingu“ Lífið Fleiri fréttir Þriðja dóttir Sverris Bergmanns og Kristínar Evu komin í heiminn Óborganlegt faðmlag Jóhanns og Sigurðar „Litlu hlutirnir gefa lífinu merkingu“ Mesta áskorunin að greinast með hryggskekkju Sigurður Sævar og Guðbjörg í sundur Britney farin í meðferð Reynir og Sólveig giftu sig í rauðu Á götunni ellefu ára og segir kerfið hafa gefist upp þegar hún var þrettán Söngvari Massive Attack handtekinn á mótmælum Stjörnulífið: Helen og Ruben ástfangin á Ítalíu Fortíðarþrá einkenndi endurkomuna á stóra sviðið Eilíf glötun bíður ekki endilega bóka í ruslagámum „Að fá þessa greiningu er ekki endapunktur“ Neyðarlegast að handleggsbrjóta vinkonu á sviði Krakkatía vikunnar: Skoffín, geitur og jarðarber Allir og amma þeirra í bókaklúbb Brúðkaupsdagurinn skilaði rúmum þremur milljónum Tónlist sem tekur á skömm og ótta með nokkrum blótsyrðum Steig fram eftir að sex ára dóttir hennar varð fyrir rasisma Mildari og þolinmóðari við sjálfa sig eftir greininguna Fréttatía vikunnar: Bó, vatn og vopnahlé Leitaði upprunans og fékk óvænta frænku í heimsókn Páll Edwald og Selma Eir trúlofuð „Er ég að klikka strax í 50?“ „Maður þarf að gera alla hluti upp“ Umdeildi brautryðjandinn Afrika Bambaataa allur Lærði að lifa lífinu upp á nýtt eftir alvarleg veikindi Sjarmatröllið sem setti popptónlist í öndvegi Halla gerir undantekningu vegna andlátsins Það er komið gó hjá Bó Sjá meira