Allt að fimm leikir íslenska liðsins í opinni dagskrá 3. september 2010 20:42 Leiki íslenska landsliðið til úrslita verða samtals fimm leikir liðsins sýndi í opinni dagskrá á Stöð 2 Sport
Allt að fimm leikir með íslenska landsliðnu á heimsmeistramótinu í handbolta á næsta ári verða sýndir í opinni dagskrá á Stöð 2 Sport. Forysta HSÍ er sátt við þessa niðurstöðu. Þetta kom fram í máli Ara Edwald, forstjóra 365, þegar vetrardagskrá Stöðvar 2 og sportrásanna var kynnt í Listasafni Reykjavíkur í kvöld. Eins og frægt er orðið var í síðasta mánuði undirritaður samningar um sýningu næstu tveggja heimsmeistaramóta í handbolta á Stöð 2 Sport. Næsta mót verður haldið í Svíþjóð í janúar, en íslenska landsliðið verður þar í eldlínunni eins og landsmönnum er kunnugt. Í samtali við fréttastofu sagði Ari að mun fleiri leikir verði sýndir frá heimsmeistaramótinu í Svíþjóð en áður hefur verið gert. „Við ætlum til að mynda að sýna alla leikina í riðlakeppninni."Tveir leikir í riðlakeppninni opnir Ísland leikur fimm leiki í riðlakeppninni. „Af þeim ætlum við að hafa tvo í opinni dagskrá. Þetta eru byrjunarleikurinn á móti Ungverjalandi og leikurinn gegn Japan. Við gerum ráð fyrir að Ísland komist í milliriðil og þar ætlum við að hafa einn leik Íslands í opinni dagskrá. Síðan vonast auðvitað allir til þess að Ísland spili um sæti og þar verður einn leikur landsliðsins til viðbótar opinn. Svo munum við hafa úrslitaleikinn í opinni dagskrá óháð því hvort Ísland spili til úrslita," segir Ari. Ekki er skylt að sýna úrslitaleikinn í opinni dagskrá líkt og á heimsmeistaramótinu í fótbolta. Ari Edwald, forstjóri 365.Mynd/GVA Unnið í samvinnu við HSÍ Ef Ísland leikur til úrslita verða alls fimm leikir landsliðsins sýndir í opinni dagskrá á Stöð 2 Sport. „Þetta er algjörlega okkar eigin ákvörðun. Við höfum verið að vinna þetta í samvinnu við HSÍ og forysta sambandsins er mjög ánægð með þessa niðurstöðu," segir Ari. HM í Svíþjóð stendur frá 13.-30. janúar og mun Stöð 2 Sport gera mótinu góð skil auk þess sem valdir leikir verða sýndir í háskerpu. Mikil eftirvænting er fyrir mótið enda vann liðið silfur á síðustu Ólympíuleikum og brons á síðasta Evrópumóti.
Mest lesið Húðlæknir bregst við brúnkutískunni Innlent Geirdís geti leitað á tjaldsvæði og greitt markaðsverð Innlent „Þú getur ekkert forðað þér, það verður bara að takast á við þetta“ Innlent „Afleiðingarnar muni vara í einhver ár jafnvel“ Erlent Þremur skemmtistöðum lokað í sameiginlegum aðgerðum Innlent Bandaríkjastjórn lokar á aðgang erlendra ríkisborgara Innlent „Okkur er gert að vera áfram í drullusvaðinu á Sævarhöfða“ Innlent Áfall fyrir bæjarfélagið Innlent Þrjár aflýsingar hjá Icelandair Innlent Fleiri hlynntir en andvígir samkvæmt nýrri könnun Innlent Fleiri fréttir Fleiri hlynntir en andvígir samkvæmt nýrri könnun Geirdís geti leitað á tjaldsvæði og greitt markaðsverð Krapvélar í yfirvinnu í góða veðrinu Bandaríkjastjórn lokar á aðgang erlendra ríkisborgara Áfall fyrir bæjarfélagið „Okkur er gert að vera áfram í drullusvaðinu á Sævarhöfða“ Lokað vegna skorts á starfsleyfi „Við horfum bjartsýn fram á veg“ Þrjár aflýsingar hjá Icelandair Hægt að skoða þyrlur og sprengjuleitarbúnað Gæslunnar Viðgerð Herjólfs dregst um þrjár vikur: „Vonum að þetta fari nú að verða búið“ Tilgangslaust stríð og æfir hjólabúar „Þú getur ekkert forðað þér, það verður bara að takast á við þetta“ Hlaðvarparar hrósa sigri: „Logi er greinilega nettur gæi“ Bein útsending: Brautskráning Háskóla Íslands Húðlæknir bregst við brúnkutískunni Þremur skemmtistöðum lokað í sameiginlegum aðgerðum Eldhaf gaus upp í vélarrúmi og skipið rak í þrjá tíma Sæbrautargátan leyst: Það er 58, ekki 60 - en samt ekki alveg Ríkisstjórnin ýmist bensínlaus bátur eða á leikskóla í platheimi Friðarsamkomulag, rauð ljós á Sæbraut og ógeðfelldar lýsingar í dómsal Njósnarar enn í lögsögunni Felldi loks tár þegar andlát eiginmannsins var rætt „Af hverju má ég vera í Hveragerði en Grindvíkingar ekki í Grindavík?“ Hittust átta sinnum til að úrskurða um risaeðlubeinin Bólar ekkert á ályktun ungra miðflokksmanna Kviknaði í raftæki Samgönguáætlun samþykkt á Alþingi Staðfesta synjun SÍ: „Þetta er ekki bara fyrir Jón Atla“ Eigi von á tæplega 200 þúsund gestum Sjá meira