Hætta á að Umboðsmaður skuldara skaðist Ingimar Karl Helgason skrifar 29. júlí 2010 16:42 „
Ég tel að þetta geti skaðað embættið," segir Ásta Sigrún Helgadóttir, forstöðumaður Ráðgjafarstofu um fjármál heimilanna. Hún var í hópi umsækjenda um embætti umboðsmanns skuldara, en Runólfur Ágústsson, fyrrverandi rektor á Bifröst var nýlega skipaður í embættið. Í gær kom fram Runólfur hefði fengið hundruð milljóna króna að láni vegna hlutabréfaviðskipta fyrir hrun, í gegnum félagið Obduro. Líklegt þykir að Sparisjóður Keflavíkur og fleiri fjármálastofnanir verði að afskrifa háar fjárhæðir vegna þess. Fram kom í fréttum Stöðvar 2 í gær að félagsmálaráðuneytið taldi sér ekki hafa verið kunnugt um þetta þegar Runólfur var skipaður. Hvorki Runólfur né ráðuneytið hafa viljað ræða málið við fréttastofu. Ásta Sigrún segir þessa fortíð Runólfs vera bagalega. „Þetta er viðkvæmur og erfiður málaflokkur og mikilvægt að þeir sem sinni þessum störfum séu með allt sitt á hreinu." Hún hefur krafist skriflegs rökstuðings frá félagsmálaráðuneytinu vegna skipunarinnar. Rökstuðninginn vill hún fá ekki seinna en 10. ágúst og að honum fylgi gögn, þar á meðal hæfismat sem umsækjendur gengust undir. Þegar rökstuðningurinn og gögnin berist ákveði hún næstu skref, sem gætu falist í kvörtun til Umboðsmanns Alþingis eða Jafnréttisstofu. Hún segist hafa fengið þó nokkur viðbrögð við þessu. „Síminn hjá mér hefur ekki stoppað og ólíklegasta fólk úr öllum flokkum hefur þakkað mér fyrir að gera þetta," segir Ásta Sigrún Helgadóttir. Ásta Sigrún hefur stýrt Ráðgjafarstofu um fjármál heimilanna í sjö ár, en vann áður í félagsmálaráðuneytinu og hjá félagsþjónustunni í Reykjavík. Hún er lögfræðingur
Mest lesið Maður stunginn í miðbæ Reykjavíkur Innlent Flugfólkið þurfti stöðugt að varast trúarlögregluna Innlent „Við þurfum að horfast í augu við þessa fortíð“ Innlent Nafn piltsins sem lést í slysi á Miklubraut Innlent „Þetta er náttúrulega bara rotið og galið“ Innlent Nemendur vilji ekki vera í skólanum á meðan rektor er við stjórnvölinn Innlent Leita enn að geranda í stungumáli Innlent Birgir Örn óviss en Ísak Leon handviss Innlent Kosningavaktin 2026: Landsmenn kjósa sér sveitarstjórnir Innlent Epstein-skjölin, verðbólgan og bréf leikskólastjóra Innlent Fleiri fréttir Vill lægri skatta á matvöruverð og leitað að stungumanni Leita enn að geranda í stungumáli Epstein-skjölin, verðbólgan og bréf leikskólastjóra Flugfólkið þurfti stöðugt að varast trúarlögregluna Maður stunginn í miðbæ Reykjavíkur „Við þurfum að horfast í augu við þessa fortíð“ Orri oddviti Sjálfstæðismanna í Hafnarfirði Birgir Örn óviss en Ísak Leon handviss Þór leiðir aftur á Seltjarnarnesi María Ellen kjörin oddviti Viðreisnar í Kópavogi Orri áfram oddviti Framsóknar í Kópavogi Jónas Már kjörinn oddviti Samfylkingarinnar í Kópavogi Þorvaldur og Halldór með Einari og Magneu í Framsókn Einn handtekinn fyrir þjófnað í Skeifunni „Þetta er náttúrulega bara rotið og galið“ Nafn piltsins sem lést í slysi á Miklubraut Hjólar í borgina: Hafi engan áhuga á atkvæðum hjólreiðafólks Sigmundur í skotlínunni vegna ummæla um Svíþjóð Berglind rétt marði Þórhall „Síminn stoppar ekki“ Bifrastarmálið: „Þetta er fyrst og fremst sorglegt“ Mótorhjól eru bönnuð í Grænlandi Vantrauststillagan stendur þrátt fyrir niðurstöðu siðanefndar Hlédís Maren fram fyrir Miðflokkinn Nemendur vilji ekki vera í skólanum á meðan rektor er við stjórnvölinn Spyr hvort troða eigi gömlu fólki inn á heimili landsmanna Þrír gerðir að heiðursfélögum Sleipnis á Selfossi Viðreisn býður fram undir eigin merkjum á Ísafirði „Það er ekkert hæft í þessu“ Flutningabílar fastir á Þröskuldum Sjá meira