Hanna segir Dag gera lítið úr vinnu fyrri meirihluta 13. júlí 2010 06:15 Hanna Birna segir að ákvörðun um að styrkja lausafjárstöðu borgarinnar vegna bakábyrgða á OR hafi verið tekin fyrir kosningar.
Hanna Birna Kristjánsdóttir borgarfulltrúi segir að í desember á síðasta ári hafi þáverandi meirihluti í borgarstjórn ákveðið að láta vinna áhættumat vegna stöðu Orkuveitu Reykjavíkur. Í mars hafi legið fyrir að borgin þyrfti að viðhalda 10 til 12 milljarða lausafjárstöðu vegna Orkuveitunnar. Hanna Birna segir ósanngjarnt hjá Degi B. Eggertssyni, formanni borgarráðs, að tala nú um að borgin sé komin af afneitunarstigi í málum OR og sé nú fyrst að taka mál fyrirtækisins föstum tökum eins og fram kom í máli Dags í Fréttablaðinu á laugardag. „Borgin hefur aldrei verið á neinu afneitunarstigi hvað þetta varðar. Með þessum ummælum gerir Dagur lítið úr þeirri miklu vinnu sem borgarfulltrúar allra flokka, stjórnendur og starfsmenn borgarinnar hafa lagt á sig til að standa vörð um fyrirtækið og hagsmuni þess. Sú vinna er ekki komin til vegna nýs meirihluta heldur hefur staðið yfir um langt skeið," segir Hanna Birna. Í tæp tvö ár hafi verið unnið að því að hagræða í rekstri OR til að bregðast við afleiðingum hrunsins. Allir borgarfulltrúar hafi verið sammála um að fresta gjaldskrárhækkunum í tvö ár vegna efnahagsástandsins. Það þýði hins vegar ekki að gjaldskrár borgarinnar og fyrirtækja hennar verði frystar um aldur og ævi heldur það að borgarstjórn vilji standa með borgarbúum við þær erfiðu aðstæður sem ríkt hafa.
Mest lesið Lúther sagður í haldi vegna kókaínsmygls Innlent Afturkalla breytinguna gegn gjaldi Innlent Árekstur við afleggjara á Norðurlandi vestra Innlent „Hefði mátt koma í veg fyrir enn frekari ótta“ Innlent Náði ekki símsambandi og hélt af stað gangandi Innlent Bráð veikindi á Fimmvörðuhálsi Innlent Nauðsynlegt að rífa stúkuna sem fyrst Innlent „Fyllerísrugl“ endaði með handtöku og beinbroti Innlent Með ráðum gert að gefa þjóðinni frí frá pólitíkinni í aðdraganda atkvæðagreiðslunnar Innlent Endalaust þvaður gæti fælt kjósendur frá Innlent Fleiri fréttir Heimilislausir Píratar leita að nýrri Tortúga Kannski rétt að hverfa frá áformum um nýjan sparkvöll við Landakot Lúther sagður í haldi vegna kókaínsmygls „Fyllerísrugl“ endaði með handtöku og beinbroti Árekstur við afleggjara á Norðurlandi vestra „Hefði mátt koma í veg fyrir enn frekari ótta“ Nýtt app til að finna týndar kisur frumsýnt í dag eftir sex ára þróunarvinnu Rapp og dýrðir í Búðardal Nauðsynlegt að rífa stúkuna sem fyrst Bráð veikindi á Fimmvörðuhálsi Ekið á gangandi vegfaranda við Vík Náði ekki símsambandi og hélt af stað gangandi Með ráðum gert að gefa þjóðinni frí frá pólitíkinni í aðdraganda atkvæðagreiðslunnar Tveir handteknir eftir hópslagsmál Umferðarslys á Suðurlandi, forsætisráðherra um ESB og Laugardalslaug Afturkalla breytinguna gegn gjaldi Líkamsárás og ölvunarakstur Endalaust þvaður gæti fælt kjósendur frá Synda milli Eyja og Íslands til minningar um Bríeti Irmu Breyttu verklagi eftir ábendingar Hvals: „Bagalegt að íslenskum sjómönnum sé stefnt í hættu“ Innbroti í apótek lauk með glæfraakstri yfir göngubrú Grunur um uppljóstrun, hætta á aðgerðaleysi og eftirför Þriggja bíla árekstur á Reykjanesbraut Sakar MAST um að ljóstra upp um staðsetningu skipa Hvals „Sé ekki annað en að Samkeppniseftirlitið sé að sinna sínu hlutverki“ Vesturbæjarlaug opnar dyrnar á ný „Alltaf litið á þetta sem eitthvað sem bráðamóttakan gerir“ Guðlaugur segir Þorgerði á hröðum flótta Þrjú tilvik til rannsóknar: Bandero á ferðinni á hvalamiðum Þorgerður Katrín mun ekki mæta Gulla Þór Sjá meira