Innlent

Þyrlan sótti konu sem villtist í þoku

TF-GNÁ, þyrla Landhelgisgæslunnar, leitaði í nótt að konu sem hafði villst í þoku. Lögreglunni á Ólafsfirði barst tilkynning um konu sem hafði farið af stað yfir Reykjaheiði, sem er á milli Dalvíkur og Ólafsfjarðar.

Þyrla gæslunnar lagði af stað úr bænum klukkan 01:54 og fannst konan svo heil á húfi klukkan fjögur í nótt. Nánari málsatvik liggja fyrir.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×