Neitar því að hafa hvatt Unni til að hafna kaupum Magma Þorbjörn Þórðarson skrifar 11. ágúst 2010 12:00 Sveinn Margeirsson, doktor í iðnaðarverkfræði. Samtals hans og Unnar átti sér stað löngu eftir að nefnd um erlenda fjárfestingu tók ákvörðun.
Sveinn Margeirsson, doktor í iðnaðarverkfræði, hafnar því að hafa hvatt Unni G. Kristjánsdóttur um að hafna kaupum Magma í HS Orku, enda hafi nefnd um erlenda fjárfestingu verið löngu búin að taka ákvörðun þegar samtal þeirra átti sér stað, en þetta var meðal þess sem réð því að forsætisráðherra vildi ekki skipa Svein í nefnd sem rannsaka á kaup Magma á HS Orku. Sveinn segir í greinargerð sinni að afar hæpnar forsendur búi að baki ákvörðun ráðuneytisins og vandséð sé ferlið sé til þess fallið að auka traust á starfi nefndarinnar. Fram hefur komið í fjölmiðlum að Unnur G. Kristjánsdóttir, formaður nefndar um erlenda fjárfestingu, hafi látið forsætisráðuneytið vita af samtali hennar og Sveins Margeirssonar, sem er systursonur eiginmanns hennar, þar sem hann hafi hvatt hana, sem formann nefndar um erlenda fjárfestingu, til staðfesta ekki kaup Magma á HS Orku. Sveinn segir þetta alrangt, því nefnd um erlenda fjárfestingu hafði þegar tekið ákvörðun í málinu þegar samtal þeirra átti sér stað, en nefndin tók ákvörðun sína í mars síðastliðnum. Þá segir hann Unni fara rangt með tíma samtalsins í tölvupósti til forsætisráðuneytisins, það hafi ekki verið í vor heldur hinn 9. júlí síðastliðinn. Í greinargerð Sveins til forsætisráðuneytisins, sem fréttastofa hefur undir höndum, segist hann hafa hringt í Unni til að heyra frá henni sjálfri hvaða forsendur hefðu legið til grundvallar þegar nefnd um erlenda fjárfestingu tók ákvörðun um að heimila Magma Energy kaup á hlutafé í HS Orku. Unnur hafi þá tjáð honum að fimm lögfræðiálit hefðu legið til grundvallar ákvörðun nefndarinnar, en tvö þeirra hefðu verið þess efnis að hafna bæri kaupunum. Hann segist þá hafa lýst þeirri skoðun sinni að nefndin hefði byggt ákvörðun sína á hæpnum forsendum enda lægi fyrir lagalegur ágreiningur um málið og enginn nefndarmanna væri lögfræðimenntaður. Og sagðist hann því hafa lýst þeirri skoðun sinni að eftirláta ætti dómstólum að skera úr um málið, þar sem ágreiningur væri um lögmætið. Jóhanna Sigurðardóttir, forsætisráðherra, vék sérstaklega að þessu samtali Sveins og Unnar á blaðamannnafundi ríkisstjórnarinnar í gær og sagði að það hefði skipt máli þegar seta hans í nefndinni var ekki staðfest. Endanleg ákvörðun um að staðfesta ekki skipun hans í nefndinni var þó tekin á þeim grundvelli að hann væri venslamaður Unnar, í samræmi við minnisblað lektors í stjórnsýslurétti, en ekki á þeirri forsendu að hann hefði lýst skoðunum sínum á málinu.
Mest lesið Nafn piltsins sem lést í slysi á Miklubraut Innlent „Þetta er náttúrulega bara rotið og galið“ Innlent Nemendur vilji ekki vera í skólanum á meðan rektor er við stjórnvölinn Innlent „Það er ekkert hæft í þessu“ Innlent Sigmundur í skotlínunni vegna ummæla um Svíþjóð Innlent Segist ekki hafa gert mistök við birtingu myndbandsins Erlent „Sorglegra en orð fá lýst“ Innlent Efaðist ekki um að orsökin var bilaður aðflugsgeisli Innlent Birtu ekki baulið Erlent Berglind rétt marði Þórhall Innlent Fleiri fréttir Orri oddviti Sjálfstæðismanna í Hafnarfirði Birgir Örn óviss en Ísak Leon handviss Þór leiðir aftur á Seltjarnarnesi María Ellen kjörin oddviti Viðreisnar í Kópavogi Orri áfram oddviti Framsóknar í Kópavogi Jónas Már kjörinn oddviti Samfylkingarinnar í Kópavogi Þorvaldur og Halldór með Einari og Magneu í Framsókn Einn handtekinn fyrir þjófnað í Skeifunni „Þetta er náttúrulega bara rotið og galið“ Nafn piltsins sem lést í slysi á Miklubraut Hjólar í borgina: Hafi engan áhuga á atkvæðum hjólreiðafólks Sigmundur í skotlínunni vegna ummæla um Svíþjóð Berglind rétt marði Þórhall „Síminn stoppar ekki“ Bifrastarmálið: „Þetta er fyrst og fremst sorglegt“ Mótorhjól eru bönnuð í Grænlandi Vantrauststillagan stendur þrátt fyrir niðurstöðu siðanefndar Hlédís Maren fram fyrir Miðflokkinn Nemendur vilji ekki vera í skólanum á meðan rektor er við stjórnvölinn Spyr hvort troða eigi gömlu fólki inn á heimili landsmanna Þrír gerðir að heiðursfélögum Sleipnis á Selfossi Viðreisn býður fram undir eigin merkjum á Ísafirði „Það er ekkert hæft í þessu“ Flutningabílar fastir á Þröskuldum Mætti með eggvopn á skemmtistað Efaðist ekki um að orsökin var bilaður aðflugsgeisli Skriður kominn á tuttugu ára gömul áform um nýjan golfvöll á Álftanesi „Ástandið hefur aldrei verið jafn slæmt“ Fósturforeldrar og barnavernd upplifað algjört afskiptaleysi „Sorglegra en orð fá lýst“ Sjá meira