Hundfúll að vera fastur í Finnlandi 16. apríl 2010 09:00 Kristján Már fór á kostum í umfjöllun sinni um gosið á Fimmvörðuhálsi. Hann er hundfúll yfir því að vera í Finnlandi á meðan eldgosið í Eyjafjallajökli lamar allar flugsamgöngur í Evrópu. Fréttablaðið/Anton „
Það er bara skelfilegt að vera hérna, það er það," segir Kristján Már Unnarsson, fréttamaður á Stöð 2, en hann er staddur í Finnlandi ásamt samstarfsmanni sínum, Heimi Má Péturssyni, á ráðstefnu norrænna fréttamanna. Kristján fór á kostum í fréttum af eldgosinu á Fimmvörðuhálsi nýverið þar sem hann komst í einstakt návígi við hrikalega krafta úr iðrum jarðar. Kristján er eldri en tvævetur þegar kemur að eldgosum en hann hefur fjallað um sex eða sjö eldgos á sínum fréttamannsferli. „Við erum hérna 25 fréttamenn og það er ekkert rætt um annað, menn hafa áhyggjur af því að komast ekki heim," segir Kristján. Þótt reynsluboltinn vilji gera lítið úr fjarveru sinni þá má greina að honum þyki verra að standa ekki við Markarfljót eða vera uppi í flugvél með jarðeðlisfræðingum. Því í bakgrunni símtalsins má heyra lýsingar fréttamanna BBC á eldgosinu og það stendur ekki á aðdáuninni þegar myndir frá Eyjafjallajökli líða yfir skjáinn. „Nei, nei, þetta eru svakalegar myndir, vá, þetta er bara aðalfréttin í heiminum," segir Kristján og tekur sér smá stund til að drekka í sig þessar hrikalegu náttúruhamfarir sem hafa lamað flugumferð um alla Evrópu. Kristján minnist þess að fyrsta eldgosið sem hann hafi séð hafi verið Surtseyjargosið, „En þetta gos, eldgosið í Eyjafjallajökli, þetta er sennilega það gos sem hefur fengið hvað mestu athyglina, það er heimsfrægt." - fgg
Menning Mest lesið Eitt myndband selji upp heilu lagerana Menning Barbie-framhald í uppnámi vegna launakrafa Lífið Fréttatía vikunnar: Björk, Usher og peningaþvætti Lífið Dorrit sendir rabbínanum tóninn Lífið Adam Driver mættur í Marvel-heiminn Lífið Hjartnæm athöfn þegar Gunnar Þórðarson var jarðsunginn Lífið Hálfsextugur Hamm að verða pabbi í fyrsta sinn Lífið Robbie Williams einhverfur Lífið Stiklusúpa: Sturlað leikjahaust og vetur í vændum Leikjavísir „Sterklega orðaður“ við Bond og efstur hjá veðbönkum Bíó og sjónvarp Fleiri fréttir Adam Driver mættur í Marvel-heiminn Fréttatía vikunnar: Björk, Usher og peningaþvætti Barbie-framhald í uppnámi vegna launakrafa Robbie Williams einhverfur Hálfsextugur Hamm að verða pabbi í fyrsta sinn Hjartnæm athöfn þegar Gunnar Þórðarson var jarðsunginn Dorrit sendir rabbínanum tóninn Berskjölduð og óttaslegin eftir skilnaðinn og framtíðin óráðin Jóhanna Guðrún ólétt Útför Gunnars Þórðarsonar Dreymir um að halda næstu Kaleo-tónleika á Vestfjörðum Emmsjé edrú í sjö ár Fór á skeljarnar undir almyrkvanum Einelti kvenna á vinnustað lúmskt og einkennist af gaslýsingu Hvað veistu um… kirkjur á Íslandi? Þjóðir sem eigi í vopnuðum átökum megi ekki halda Eurovision Guðni var lokaður inni í síðasta almyrkva: „Ég man þennan morgun enn“ Móðir Perezar Hilton sækir um tímabundið forræði yfir börnunum Jói Pé og Molly selja skrifstofuhæð innréttaða sem íbúð OnlyFans-stjarna dæmd fyrir að stinga kærastann til bana Ocasio-Cortez á lausu Frægustu mágar landsins Office-stjarna með ólæknandi krabbamein Pálmi Kormákur og Guðrún nýtt par Selja útsýnishús með saunu og sjóvatnspotti Usher þvertekur fyrir klónið „Það er engin skömm í krabbameininu“ Dottinn í það á ný: „Ég var edrú í sjö ár“ Einstakt einbýlishús á 235 milljónir í Garðabæ Gugga á Þjóðhátíð: „Er þetta leigubíll? Nei, þetta er pó-pó“ Sjá meira